Getum við valið ?

Ef maður getur ekki borgað skuldir sínar þá fer maður á hausinn... verður gjaldþrota. Einhvern veginn finnst mér sumir stjórnmálamenn tala þannig að við bara ráðum því hvort við borgum Icesave skuldirnar eða ekki...

Það er hundfúlt og þyngra en tárum taki að þurfa að borga skuldir sem aðrir settu okkur í án þess að við hefðum hugmynd um það.

En er það virkilega þannig Höskuldur Þórhallsson að við getum bara valið um það að borga eða borga ekki ?

Mikið vildi ég að svo væri.
.

 CJ708BIG

.


mbl.is Samningurinn dæmir okkur til fátæktar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Þú myndir ekki borga skuldir sem ég stofna til, þér dytti það aldrei í hug.

Þessvegna eigum við ekki að borga skuldir sem þeir aðrir stofnuðu til, þ.e. án þess að kanna það til hlítar hvort við erum ábyrgðaraðilar.

Um það snýst deilan, og ég vil meina að íslenzkur almenningur sé ekki ábyrgur skv. lögum fyrir þessum skuldum.

Ef Bretar og Hollendingar telja svo ekki vera nú þá er það þeirra mál að sækja sinn rétt eftir réttum leiðum og það er dómskerfið.  Ekkert annað !!

Sigurður Sigurðsson, 4.8.2009 kl. 20:41

2 Smámynd: Landfari

Það getur engin annar en alþingi samþykkt ríkisábyrgðir. Það hefur það hingað til ekki gert varaðndi þessa "Icesave" reikninga því samkvæmt þeim lögum sem í gildi eru, eru þeir ekki með ríkisábyrgð heldur bara tryggðir af Innlánstryggingasjóði.

Ef þesir samningar sem nú liggja fyrir þinginu verða samþykktir er óumdeilt að ríkið er að fullu ábyrgt fyrir þessum greiðslum.

Ráherrar hafa að vísu sagt eitt og annaðum þessa reikninga en þeir hafa ekki umboð til að skuldbinda ríkið.

Sumun finnst sanngjarnt að Íslendingar borgi þetta því það voru Íslendingar sem stálu þessu. Þá má að sumu leiti til sanns vegar færa en ég hef nú engan Íslending gera kröfu á Lettneska ríkið fyrir því sem þjófagengi þaðan hafa stolið af Íslendingum.

Um það snýst allt þetta mál. Ef við gætum ekki valið væri málið ekki fyrir Alþingi Íslendinga núna.

Landfari, 4.8.2009 kl. 21:07

3 Smámynd: Brattur

Fólk úr öllum flokkum hefur sagt, þ.m.t. Bjarni Ben. og Geir Haarde í haust, að við ættum að standa við skuldbindingar "okkar"... mér finnst þetta ekki vera "okkar" skuldbindingar en voru lögin og eru kannski þannig að við, þjóðin, erum í ábyrgð fyrir þessum skuldum ??? það finnst mér aldrei hafa komið almennilega skýrt fram...

Brattur, 4.8.2009 kl. 21:21

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

"till the pry it out of my ztone cold dead hand'z ...."

Menn eða mýz ?

Zteinbekk...

Steingrímur Helgason, 4.8.2009 kl. 23:20

5 Smámynd: Finnur Bárðarson

Íslendingar eru svo sérstakir, heimsmeistaraþjóðin vegur það og metur sjálf hvort hún á að borga skuldir sínar eða ekki.

Finnur Bárðarson, 7.8.2009 kl. 14:54

6 Smámynd: Landfari

Finnur ég geri kröfu til þess að þú borgir mér það sem þú skuldar mér og það með vöxtum.

Ég er búinn að ákveða að þeta sé skuld sem þú átt að borga og það breytir engu hvort þú ert sammála eða ekki. 

Og þar sem ég hef ákveðið að þetta sé þín skuld krefst ég þess að þú standir við skuldbindingar þinar og borgir. Þú hefur ekkert val ef þú vilt teljast til siðmentaðra manna því þeir standa við sínar skuldbindingar. Það vita það allir að þú skuldar mér því ég er búinn að tilkynna það út um allan heim, skrifa hverja greinina eftir aðra í erlend blöð og fara í fjölda viðtala. Þú hefur hvergi mótmlt þessu og því hef ég almennigsálitið í heiminum algerlega með mér sem sannar ennbetur að þú átt að borga.

Til viðbótar upphaflegu skuldinni bætist svo við sá kostnaður sem ég hef haft af þessum viðtölum, ferðakostnaður og annað en það breyti ekki neinu fyrir þig því það er tiltölulega lítill hluti heildarupphæðarinnar.

Af því að ég veit að það setndur illa á hjá þér núna skal ég setja þetta á 15 ára skuldabréf, afborgunarlaust fyrstu 7 árin. Það er bara af greiðasemi við þig. En þá verðurðu líka að skrifa undir skuldabréfið strax.

Landfari, 7.8.2009 kl. 18:11

7 Smámynd: Finnur Bárðarson

Láttu mig fá reikningsnúmerið Landfari, kennitöluna og allt svo skal ég athuga málið :)

Finnur Bárðarson, 8.8.2009 kl. 17:51

8 Smámynd: Landfari

Þú þarft bara að skrifa undir núna Finnur. Þýðir ekkert að gefa upp reikningsnúmerið því við vitum ekkert hvort sá banki sem ég skipti við verður ofanjarðar eftir 7 ár.

Svo þarft ú ekkert að hugsa málið. Ég fann Íslending sem krifaði undir fyrir þína hönd, að vísu með fyrirvara um samþyki þitt. Þannig að nú þarft þú bara að setja stafina þína undir þetta plagg og málið er afgreitt og þú getur farið að sinna öðrum hlutum.

Landfari, 10.8.2009 kl. 14:51

9 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

svo mætirðu til bankastjóra og segist ekki geta borgað lánið þitt og hann lemur þig kaldan með uppstoppuðum lunda og þú færð kúlu á ennið.

þannig eru kúlulán almúgans

Brjánn Guðjónsson, 11.8.2009 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband