Af hverju er fingurinn flatur?

Ég skil alveg hvað Sir Alex er að fara, enda hugsum við mjög svipað félagarnir.

Það getur verið mjög óþægilegt að láta hæla sér, jafnvel hættulegt.

Einu sinni var ég að negla nagla í spýtu.

Gengur þá ekki fram hjá mér meðhjálpari á leið sinni til rakarans og segir; mikið rosalega neglir þú fallega og kröftuglega Brattur.

Ég næstum því umturnaðist af mikilmennsku, hóf hamarinn hátt á loft og sló fastar en áður...  en hitti ekki naglann á höfuðið...

Þess vegna er þumalfingurinn á mér flatur.
.

hamer-tool-u-001 

.


mbl.is Ferguson: Fréttamenn of jákvæðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Af hverju stillir þú honum ekki upp á rönd og lamdir aftur. Sá einhvern tíma svona trix með valtara og Andrés önd :)

Finnur Bárðarson, 4.4.2009 kl. 17:40

2 Smámynd: Brattur

Heyrðu Finnur þetta er gott ráð.. fyrst það virkaði á Andrés Önd hlýtur það að virka á mig... fannst Andrési það vont?

Brattur, 4.4.2009 kl. 18:32

3 Smámynd: kop

Ertu ekki til í að hamra á fingurna á gamla traktornum? Sennilega ekki.

kop, 4.4.2009 kl. 19:56

4 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Þar hitturðu naglann á höfuðið Gísli !

Eða eins og sænskir segja: "Höfuðið á naglann" (Huvudet på spiken)

Lifi fjalldrapinn!

Ásgeir Rúnar Helgason, 4.4.2009 kl. 20:32

5 Smámynd: Brattur

Gamli traktorinn... leikhús draumanna... á morgun sést hvort þar spila menn eða mýs Mr. Kop...

Það var eftir svíunum að geta ekki sagt þrjú orð í réttri röð...

Brattur, 4.4.2009 kl. 20:57

6 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Já, það verður ekki uppá svíana logið:)

Ásgeir Rúnar Helgason, 4.4.2009 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband