Hlið

Var á ferð í Mývatnssveit í síðustu viku. Veður var sérlega fallegt, sólin að rembast við að komast eins hátt á loft og hún gat á þessum árstíma. Þessi fagra sveit var eins og málverk.

Ég staldraði við þetta hlið og fannst það sem ég sá nokkuð táknrænt. Það var ískalt og snjór yfir öllu, en á lofti í fjarska var þessi fallega birta.

Kallaði þetta í huganum; Hlið framtíðarinnar.

 Hlið-Mývatn-Blogg

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Ert farin að eldast Brattur minn, orðin spakur af speki og líklega borðar þú spelt brauð með kæfu á langferðum um landið.

En það upplifa margir fegurð náttúrunnar sem svipaða tilfinningu og trúar frelsun eða ást, eittthvað einstakt sem virðist aukast með árum lífs.

Njóttu gæskur

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 18.1.2009 kl. 21:16

2 Smámynd: Brattur

Já, Þorsteinn, stundum verður maður allt að því væminn úti í náttúrunni og finnst sem maður sjái og skilji hver aðalatriðin eru í lífinu... oftast er ég hálf svangur á ferðalögum mínum, skyndibitinn er aðalfæðið... þá hlakka ég til að koma heim og borða þar besta mat í heimi!

Brattur, 18.1.2009 kl. 21:33

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Flott mynd! - Það er rétt að stundum verður maður allt að því væmin úti í náttúrunni! Ætli séu til ofsanáttúrufólk? Svona eins og ofsatrúarmenn? Og væri það fólk þá hættulegt náttúrunni svona eins og ofsatrúarmenn fæla fólk frá trúnni?

Hrönn Sigurðardóttir, 18.1.2009 kl. 21:52

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Flott mynd hja ther Brattur minn. Thu ert lunkinn med linsuna. Thetta gaeti vel verid hlid framtidarinnar. Vandinn er bara sa ad thad hitta ekki allir i gegnum thad, thvi midur.

Halldór Egill Guðnason, 19.1.2009 kl. 06:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband