Vor í vetur

... það er blankalogn úti núna, vorilmur í loftinu... Skógarþröstur syngur af innlifun á toppi hæsta trésins í götunni... vorið er yndislegt... boðar betri tíð með blóm í haga... en þó þessi vetur hafi verið grimmur... með miklum snjó og hrikalegum hvassviðrum, þá er búið að vera vor hjá mér í allan vetur...

...fallegt, hlýtt, yndislegt vor...

Vor í vetur.

Vindurinn bankaði 
kalt á gluggann

inni í hitanum slógu
hjörtun í takt

það skipti ekki máli
hvort það snjóaði
endalaust

raunar áttu þau
enga ósk heitari

en að hús þeirra
fennti í kaf 

.

 Spring_Romance-157x153

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rómantík í þessu ljóði. Gott að sjá að þið Anna hafið átt góðan vetur saman þrátt fyrir snjó og hvassviðri og kannski ekki síður þess vegna því að þá er gott að kúra innan dyra.

Og nú er að koma sumar!!!!!!!

ej

ej (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 21:52

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þú þarf ekkert að þykjast vera eitthvað vitlausari en ég.

Ég nefnilega þykist skilja þetta.

Það er nú alvöru vitleysa!

Steingrímur Helgason, 19.4.2008 kl. 00:06

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þú ert ástfanginn... það er ljóst. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 19.4.2008 kl. 03:02

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Fallegt

Hrönn Sigurðardóttir, 19.4.2008 kl. 07:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband