Að bera sig

... ég las um það á netinu um daginn að einhver manneskja í útlöndum hefði verið að bera sig...

... ég reyndi í morgun að bera mig úr stofunni og fram í eldhús...

... og viti menn, það tókst... en það var erfitt... mæli ekki með að fólk reyni þetta heima hjá sér...

... ég er enn með smá verk í bakinu eftir átökin....

.

46838_large

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Fékkstu enga aðstoð Bakkabróðir?

Edda Agnarsdóttir, 10.2.2008 kl. 12:59

2 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

hehe..alltaf jafn sniðugur...

Agnes Ólöf Thorarensen, 10.2.2008 kl. 13:04

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson


Frábær eins og venjulega...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 10.2.2008 kl. 21:16

4 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Að bera eða bera sig, er bara enn betra en að bera eins og beljurnar. Hvað eru mörg Bé í því?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 10.2.2008 kl. 22:08

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ekki líst mér á að "bera" sjálfan sig, þ.e. eins og beljurnar Ingibjörg. Það hlýtur eiginlega að vera eins og að taka sjálfan sig og snúa sér út á röngunni. svona eins og þegar sokkar eru brotnir saman.

Halldór Egill Guðnason, 10.2.2008 kl. 22:55

6 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ber er sér að baki nema bróður eigi, sagði kallinn og bar sig fagmannlega að við að bera skarn á túnið. Bar þá að svein er sagði: Heldurðu ekki að kúin hafi borið tveimur kálfum meðan þú ert að bera þig að við þetta lítilræði. Sagði þá kallinn: Betra að bera sig að en að bera sig að fávísi sinni eins og þú. Hvað ertu að bera upp á mig, segir þá sveinninn. ---- Og svo framvegis  í það óendanlega. Næstum.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.2.2008 kl. 23:18

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

 P.S.:  --- og svo var það auðvitað; Helga Sigurðardóttir: Ber allt árið.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 10.2.2008 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband