Greindarvísitalan

Það er svo mikið verið að tala um vísitölur í fjölmiðlunum þessa dagana. Ég ætla að minnast aðeins á greindarvísitöluna með smá sögu. Kannski væri ástandið í landinu betra hefði greindarvísitölunni verið gert hærra undir höfði.

Eins og menn vita þá kýta menn oft og skjóta á milli sín beittum orðaörvum, ekki síst beinast spjótin á milli nágrannabyggða... Siglfirðingar og Ólafsfirðingar og reyndar Dalvíkingar hafa löngu strítt hvorir öðrum, eins og þessi fullyrðing ber vitni um:

... þegar heimskasti Ólafsfirðingurinn flutti til Siglufjarðar, þá hækkaði greindarvísitalan á báðum stöðum...

.

flach-tim-monkey-face-2410296

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: kop

Þetta var einmitt það sem gerðist með greindarvísitöluna, þegar ég flutti frá Íslandi til útlanda. Hún hækkaði á báðum stöðum.

Það virðist samt ekki hafa verið nóg til að forða Íslendingum frá að koma sér í ógöngur. Miklu fleir treggáfaðir hefðu þurft að flytja af landi brott.

kop, 6.10.2008 kl. 21:40

2 Smámynd: Brattur

hehe... Vörður... nú mótmæli ég... þú hefðir aldrei komið okkur í þetta klandur sem við erum nú í hefðir þú stjórnað okkur hérna á skerinu... les nú alveg á milli línanna að þú ert ekki eins vitlaus og þú gefur í skyn...  þó þú haldir með Liverpool... ... en mikið skrambi hefði það nú verið gott ef útrásarstuttbuxnastrákarnir hefðu haft örlítið meira vit í kollinum...

Brattur, 6.10.2008 kl. 21:49

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jamm - þetta skeður líka þegar ég fer til Reykjavíkur! Þá hækkar greindarvísitalan beggja vegna heiðar ;)

Hrönn Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 22:03

4 Smámynd: Gulli litli

þú ert brattur þykir mér....

Gulli litli, 6.10.2008 kl. 23:04

5 Smámynd: Steingrímur Helgason

Dalvíkíngar eru óztríðnir með öllu enda brúka svarfdælzka bakkabræðravízitölu á allt mótlæti. 

Steingrímur Helgason, 6.10.2008 kl. 23:48

6 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Eraðspáí að flytja...hvar þarf svona helstað greindarvísitölujafna???

Bergljót Hreinsdóttir, 7.10.2008 kl. 17:18

7 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Hahahaha

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 9.10.2008 kl. 22:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband