United vinnur

Ekki alveg ánægður með gang mála í fyrri hálfleik... United menn þurfa að vera miklu grimmari... Scholes hálf daufur á miðjunni...

Tevez og Anderson koma inn á eftir 15-20 mínútur og þá fara hlutirnir að ganga...

Rooney óheppinn að skora ekki... en Arsenal er að fá allt of mörg færi...

Held mig enn við 2-1 sigur United....

.

 wayne+rooney_855_18295341_0_0_7005137_300

 

.


mbl.is Hargreaves tryggði United sigur með glæsimarki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Sannspár varstu...! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 13.4.2008 kl. 17:03

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú hefðir verið brenndur á báli, ef þú hefðir verið kona, svona sannspá, fyrir 200 árum.  Frábær úrslit. 

Anna Einarsdóttir, 13.4.2008 kl. 17:03

3 Smámynd: Brattur

... heppinn að hafa ekki verið uppi fyrir 200 árum, Anna... hefði ekki þorað að blogga eða spá svona þá

Brattur, 13.4.2008 kl. 17:16

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Fyrir 200 árum síðan hefði bloggið verið ennþá á leiðinni..

Gunnar Helgi Eysteinsson, 13.4.2008 kl. 17:51

5 Smámynd: Gunnar Níelsson

Bratturdamus sbr. Nostra...  Sérðu líka fyrir horn ?  Eigum við kannski að spá saman í Vikingalottóið

Gunnar Níelsson, 13.4.2008 kl. 22:02

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Vissuð þið að það er 30% vörugjald á 'napalm' keypt á eBay, & síðan tekur ríkið 80% þungaskattsgjald & á þá heildarsummu til viðbótar 24,5% virðisaukaskatt ?

Forfeður mínir áttu gott með sínar hræódýru galdrabrennur....

Steingrímur Helgason, 13.4.2008 kl. 22:09

7 Smámynd: Brattur

... ég verð nú að viðurkenna að ég er nokkuð montinn með bloggfærsluna sem ég gerði í hálfleik í leiknum í dag... ég verð einnig að viðurkenna að ég fékk hjálp frá magnaðri manneskju ættaðri af Snæfellsnesinu...

Hr. Níelsson... spá í Víkingalottóið... já ég er til... þú borgar miðann og færð 10% af vinningnum ef það kemur vinningur á hann... díll?

Steingrímur... "napalm" hef það á tilfinningunni að maður getið meitt sig á því... ekki rétt?

Brattur, 13.4.2008 kl. 22:23

8 Smámynd: Gunnar Níelsson

Díll ekkki spurning.  Þetta verður svo mikið að ég qet allveg haft það bærilegt á mínum 10%

Gunnar Níelsson, 13.4.2008 kl. 22:28

9 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Aðeins að trufla Brattur, var að grínast um daginn á blogginu vegna fréttar um skipti á Eiginkonu og Geit í Rúmeníu, bauðst til að opna skiptimarkað fyrir Geitur og eiginkonur.

Þannig fór að það eru komin tilboð í Önnu Einars.

Georg býður sjálfan sig sem verðgildi eins Asna, og svo er það ónefndur sem býður 2 Asna og 1 Geit.

Mér skilst að Anna sætti sig ekki við minna en 2 Asna, þannig að þið bara ræðið þetta gæskur.

Í Rúmeníu er góð eiginkona metin sem ein þokkaleg geit, veit ekki með verðlagningu hér heima, lítill markaður enn sem komið er, opnar samt fyrir aukatekjur sem koma sér eflaust vel fyrir marga konuna og manninn.

Var sagt að tilboðið væri í gildi til hádegis, þann 18 þessa mánaðar.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 14.4.2008 kl. 16:18

10 Smámynd: Brattur

... Þorsteinn Valur, ertu að tala um George Harrison, þann sem söng My sweet Lord?
Ekki var hann með tilboð... er það... ég hef ekkert með George að gera...hann er þá strax úr leik...

En segðu Ónefndum þetta:

Anna er ekki til sölu... eins og er... en hann mátt gera mér annað tilboð árið 2040...

Brattur, 14.4.2008 kl. 18:49

11 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Georg lét þess ekki getið að hann væri sonur Harris, og ónefndur er víst bara að hamstra Eiginkonur vegna krepputals.

Hefði sjálfur boðið upp á 3 Asna, 2 geitur og kiðling, haltan kött og blinda hænu.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 14.4.2008 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband