Glóra

Orðið grænn er talsvert notað í talmáli, þó ekki sé verið að fjalla um græna litinn... oftast er um frekar neikvæða merkingu. að ræða...

Þú ert nú meiri grænjaxlinn...

Ég er bara alveg grænn...

Ég kem í einum grænum...

Ég er grænn af öfund...

Hef ekki grænan grun...

Hef ekki græna glóru...

Það er hinsvegar alveg á hreinu að Glóran er græn... en það náttúrulega vissuð þið...

.

 3396-DEFAULT-l

.

Glóran gegnir miklu hlutverki í okkar daglega lífi... og eins gott að hlúa vel að henni blessaðri, annars gæti illa farið...

Ja, ekki vildi a.m.k. ég vera Glórulaus til lengri tíma litið...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Glóran........komumst ekki langt án hennar Allt er vænt sem vel er grænt....nema framsókn 

Halldór Egill Guðnason, 15.3.2008 kl. 00:01

2 Smámynd: Brattur

... hehe... Halldór, sagðir það sem ég hugsaði með framsókn... þeir eru náttúrulega svolítið grænir, ekki satt?

Brattur, 15.3.2008 kl. 00:23

3 Smámynd: Ragnheiður

aha...en Brattur hver býr í grennd ? Það er allaveganna alltaf rigning þar sbr veðurfréttirnar.

Glóran er svolítið sæt

Ragnheiður , 15.3.2008 kl. 08:22

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Undarlegt hvað græni liturinn er tengdur við einhvern ófullkomleika, sí og æ.  Framsókn....hm...hm...

Varðandi skemmtilegt komment þitt hjá mér:  

Ég tek tarnir, þar sem ég reyndi að setja te inn í staðinn fyrir kaffi. Það dugar mér ekki enn, en tarnirnar verða lengri og lengri svo á endanum hefst þetta, trúi ég. Bull, segir þú, - en það eru margir sem beinlínis elska bullið þitt, þannig að ég bið þig lengst allra orða að hætta því ekki. Já, dagarnir eru sannarlega mismunandi, góðir, slæmir og allt þar á milli.  Alveg eins og draumarnir!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 15.3.2008 kl. 09:14

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

ég skil ekki baun  (Baun = græn)

Gunnar Helgi Eysteinsson, 15.3.2008 kl. 14:39

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Góður! Takk fyrir síðast.

Edda Agnarsdóttir, 16.3.2008 kl. 13:00

7 Smámynd: Brattur

Já, takk sömuleiðis Edda... ég er enn að sleikja sárinn eftir að hafa lent í neðsta sætinu með yfirburðum!

Brattur, 16.3.2008 kl. 13:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband