Aftur

... rakst á þetta spakmæli... 

Það er ekki það að lesa sem er einhvers virði heldur að lesa það aftur -
J. L. Borges

Datt þá í hug ljóð sem ég hef birt áður... er ekki bara ágætt að lesa það aftur, kæru vinir...

Stjörnurnar mínar.

Um nóttina gengum við
út í niðdimmt myrkrið 
vissum ekkert hvert
við ætluðum
héldumst í hendur
og dáðumst að
stjörnunum

þær blikuðu á
dimmbláum himninum
eins og þær vildu
vísa okkur veginn

ég horfði í augun þín
stjörnurnar mínar

og var tilbúinn
að fylgja þér
á heimsenda
.

1108546645_CMyDocumentsStars 

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Þú ert spekingur sem er að þróast í spámann.

Virkilega hrifin af spakmælinu

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 7.2.2008 kl. 01:43

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Fallegt. Verð að fara að gera eitthvað í þessu Brattur(Svona bara milli mín og þín) Ég er bókstaflega grenjandi allan daginn orðið. Eitthvað svo viðkvæmur og "jumpy". Eitt svona ljóð og ég get varla látið sjá mig nokkurs staðar með augun svona bólgin, sólarhring á eftir. Ertu ekki til í að koma með eitthvað svona "macho" í næstu færslum. Vertíðarsögur eða sveitaballaslagsmál?  Síldina á Sigló eða veretíð í Eyjum....

Halldór Egill Guðnason, 7.2.2008 kl. 02:11

3 Smámynd: Ari Guðmar Hallgrímsson

Góður haltu svona áfram.

Kveðja

Ari Guðmar Hallgrímsson, 7.2.2008 kl. 11:35

4 Smámynd: Ragnheiður

Halldór Egill, það er tilboð á vasaklútum í Rúmfó, svo fást ofnæmislyf. Þú getur veifað þeim með klútnum og þóst hafa ofnæmi.

Maður hefur gott að því að fá mýkingu hérna....

Ragnheiður , 7.2.2008 kl. 16:37

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Halldór Egill Guðnason, 7.2.2008 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband