ljóð nr. 4 - 11

í sæti nr. 11 er : Mý á taði                      höfundur : Anna P. Einars
í sæti nr. 10 er : Vangadansinn              höfundur : Ægir Fúga
í sæti nr. 9 er   : Ný frú                           höfundur : Imba la´Douche
í sæti nr. 8 er   : Prósaljóð um baðferð  höfundur : Jana Eskfjörð
í sæti nr. 7 er   : Ég sakna þín Brattur   höfundur : Halldór frá Asparfelli
í sæti nr. 6 er   : Höfuðlausn                  höfundur : Anna P. Einars
í sæti nr. 5 er   : Brattur mjólkurkex     höfundur : Anna P. Einars
í sæti nr. 4 er   : Folinn                           höfundur : Ægir Fúga

....................... þau 3 ljóð sem keppa því um þrjú efstu sætin í kvöld eru : úrslit birt kl. 23:00

Klóstið                           höfundur      Jana Eskfjörð
Ég beið þín lengi ,lengi  höfundur      Anna P.Einars
Andskotans aspirnar    höfundur      Halldór frá Asparfelli

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Frábært !  Við erum næstum öll komin í úrslit.   Ég er búin að gleyma ljóðinu mínu.....  (ekki hefur það verið ógleymanlegt).... skrepp og skoða !

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:28

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

þar sem ég er dottinn út óverðskuldað að mínu mati, ætla ég mér að reyna að hafa áhrif á þessi þrjú sem keppa til úrslita.  Ekki spurning í mínum huga.  Anna á að vinna þetta.  Blót er alldrei til batnaðar.  Ég er að sjálfssögðu spennt, en ég ætla að leggja mig hjá henni Gabríelu Bóel, syngja vögguvísur og segja lygasögur, kem aftur fyrir ellefu og verð með í úrslitunum.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.7.2007 kl. 22:31

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú manst samninginn Kristjana ?  1. og 2. sætið og tvo bjórana ?  Ég á bara aðeins eftir að díla við Halldór.

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:31

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ó takk Imba a la....   Sætt af þér.

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:32

5 Smámynd: Brattur

... 2 steplur og 1 strákur í úrslitum... og þegar byrjað að semja... þið hafið 27 mín. til að smjaðra fyrir dómaranum... Dóri greyið er víðs fjarri og á erfitt með kosningabaráttu sína...

Brattur, 18.7.2007 kl. 22:35

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

  Heldurðu virkilega að við beitum brögðum Brattur ?

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:36

7 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Brattur ég skora á þig, en Gabriela Bóel bíður og ég þarf að hlaupa.

kem aftur eftir 20 mín og legg aftur inn orð fyrir Önnu.  Þú sérð það bara á myndunum öllum að ANNNNNNNNA er Laaaaaaaaaaaangsætust. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.7.2007 kl. 22:38

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ef ljóðakeppni ég sigra hratt

ætíð mun ég elska hann Bratt

Bestur er hann, það segi ég satt

svo frábært að eiga við hann tjatt.

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:39

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei kallinn minn...... ég fer sko ekki að smjaðra fyrir þér.

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:40

10 Smámynd: Brattur

... nei... hvarflaði ekki að mér, Anna... þið eruð ekki brögðóttar... annars verð ég að segja ykkur Jönu það að ég gékk fram hjá niðursuðuhillu í matvörubúð um daginn... þar var krukka sem á stóð "súrsætar gúrkur"... og þá datt mér allt í einu þið í hug... merkilegt

Brattur, 18.7.2007 kl. 22:40

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

ÆGIR lúúúúúser !

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:41

12 Smámynd: Brattur

... Kæri Ægir, þú varst flottur... og leitt með utanlandsferðina... en aldrei að vita hvað gerist enn....

Brattur, 18.7.2007 kl. 22:42

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Kom frændinn aftur til Kristjönu ??  Hann er eins og boomerang

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:42

14 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Er utanlandsferð í verðlaun ? 

Ægir, þú mátt alveg koma með mér ef ég vinn.  Ég skammast mín smá... er búin að stríða þér oggolítið of mikið.

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:45

15 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Er að blogga úr tölvunni hjá Didda bróður!!!!! Ég vil byrja á að þakka dómara keppninnar fyrir þann mikla heiður sem mér er sýndur sem einn af þremur kandidötum um fyrstu verðlaunin (Keypti 5 lítra Brattur, ef það kynni að verða til þess að einhverjir jákvæðir straumar rynni í mína átt. Fékk nýja tölvu í dag, en kemst hvorki lönd né strönd með hana og brunaði því í Grafarvoginn til brósa, þar sem mig grunaði að eitthvað spúkí væri um að vera án minnar vitundar. Hélt þetta yrði á morgun! 

Halldór Egill Guðnason, 18.7.2007 kl. 22:45

16 Smámynd: Brattur

Anna, Anna
bræðir mig
í dúnmjúkt
kökudeig.
Hvað skildi
koma frá Kristjönu
hún er býsna seig.

Brattur, 18.7.2007 kl. 22:45

17 Smámynd: Brattur

Gaman að sjá stórskáldið Halldór frá Asparfelli kominn í hús...nú harðnar keppnin...

Brattur, 18.7.2007 kl. 22:48

18 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég beitti þrýstingi Halldór..... svo ég myndi ekki missa af herlegheitunum.  Verð sko utan þjónustusvæðis á morgun og allt svoleiðis. 

Ekki breytast í kökuklessu Brattur minn.

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:49

19 Smámynd: Brattur

Ægir... úppss... spurning um að byrja upp á nýtt og sjá hvort þú komist þá ekki í 3ja ljóða úrslitin... hvað segja hinir keppendurnir um það????????

Brattur, 18.7.2007 kl. 22:49

20 Smámynd: Lára Stefánsdóttir

Brattur hefði gott af utanlandsferð Ægir, spurning hvort hann hefur ekki aukaóvæntuverðlaun bara svo hann komist. Mæli með að það sé á strandstað þar sem hann getur legið óáreittur í sandi, munið bara að vitja hans á kvöldin svo hann gleymist ekki þar.

Lára Stefánsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:50

21 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hvenær liggja úrslit fyrir Brattur? Vænkast eitthvað hagur minn og aukast sigurlíkur ef ég hvísla í eyru þér að ég eigi 7 lítra?

Halldór Egill Guðnason, 18.7.2007 kl. 22:50

22 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já, hleyptu Ægi inn.  Fjögur efstu.  Hann verður svo glaður, strákurinn.   Svo líst mér heldur ekkert á að hann grenji úr sér augun á fúguna sem hann er búinn að vinna að ALLT ÞETTA ÁR.  Maður minn, ef fúgan þolir það svo ekki.  Þá hef ég engan til að stríða í langan tíma. 

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:53

23 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ljótt að plata Halldór !  Þú átt bara 5.  Sagðir það áðan. 

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:54

24 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Keypti tvo auka, svon leyni, Anna, ef ske kynni að ég þyrfti beita bellibrögðum.

Halldór Egill Guðnason, 18.7.2007 kl. 22:56

25 Smámynd: Brattur

Á tjörninni syndir lómur
Nú nálgast stóri dómur
Hjörtun sigur þrá
ótt og títt þau slá

Brattur, 18.7.2007 kl. 22:56

26 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Gengur Anna gólfið um

í götóttum sokkum 

bíður eftir verðlaunum

í öllum flokkum

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 22:58

27 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Halldór.... ehmmm...... komdu hérna aðeins afsíðis. 

hvísl.... (sko ef þú vinnur, gefur þú mér tvo bjóra en ef ég vinn gef ég þér a.m.k. einn, kannski tvo.  Díll ? )

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 23:00

28 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Í rólegheitum Halldór bíður,

að úrslitunum senn nú líður.

Á brósa tölvu gónir blíður,

hjá asparhrelli hjartsláttur tíður.

Hvað tefur Bratt? 

Halldór Egill Guðnason, 18.7.2007 kl. 23:01

29 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Góður Ægir 

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 23:01

30 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Anna.: Díll  Þið hin.: Þið sáu hvorki né heyrðuð af þessu plotti.

Halldór Egill Guðnason, 18.7.2007 kl. 23:02

31 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Úpps ég heyrði en fyrir einn bjór stein held ég kjafti

Arnfinnur Bragason, 18.7.2007 kl. 23:04

32 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þarf að bregða mér afsíðis í örfáar mínútur Kem að vörmu spori.

Halldór Egill Guðnason, 18.7.2007 kl. 23:04

33 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Í spariföt - með varalit

og bros upp fer

hvernig sem að verða úrslit

ég glöð nú er 

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 23:04

34 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Og ég var ekki að hlusta var að spila pool og var mjög einbeittur við það. .... verðið að hvísla, ekki tala svona hátt.

Arnfinnur Bragason, 18.7.2007 kl. 23:05

35 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ægir.: Á eitthvað að svíkjast undan plottinu? Snöggur að samþykkja, áður en Brattue ltur hingað 

Halldór Egill Guðnason, 18.7.2007 kl. 23:06

36 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þegiðu Arnfinnur.... ég gef þér sopa.

Anna Einarsdóttir, 18.7.2007 kl. 23:06

37 Smámynd: Arnfinnur Bragason

Bjór, góða einn baukur og málið er dautt

Arnfinnur Bragason, 18.7.2007 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband