Óvissuljóð

Meðan ég verð að heiman í dag og á morgun, þá er verður opið hús hjá mér í þættinum Óvissuljóð. Bloggvinir og aðrir skemmtilegir gestir spreita sig á að gera ljóð sem enginn veit hvernig enda þegar lagt er af stað, sbr. óvissuferð.... hér er sýnishorn...

Hver er maðurinn? 

Syndir eins og selur
Smá stund að heiman dvelur
Lítillátur ljúfur kátur
Leysið þetta hnátur...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Psssst..... bloggvinir !

Hér á að yrkja mestu bögur sem Brattur mun augum líta á allri sinni ævi.  Stuðlar og höfuðstafir eru algerlega bannaðir.  Það má bara ríma nokkurnveginn. 

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 09:37

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Í sturtubotni svamla þeir

og synda boðsundskeppni

ææ, það komu stuðlar tveir

og höfuðstafur !  Heppni ! 

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 11:16

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Til Ægis var baðkeppnin flutt

hann fúgu er með milli handa

en laugin er dálítið stutt

Þar Brattur mun stranda.

Halldór í liði með Bratti 

bringusund æfir og erobikk

ég held ekk´að strákarnir fatti

hve ferlega þeir eru klikk.

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 12:59

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Marvaðan treður sem mest hann má,

mikilmennið Brattur.

Í sturtubotni sem Ægir á,

af Halldóri á bakkanum hvattur.

Halldór Egill Guðnason, 16.7.2007 kl. 14:33

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Halldór, Brattur og Ægir,

lofa að vera þægir.

Á meðan Kristjana og Anna,

tæta þá milli tanna.

Halldór Egill Guðnason, 16.7.2007 kl. 14:38

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Tannstöngla ég með mér hef

og stanga ykkur úr tönnum

því ekki mikið fyrir það gef

að hafa munn fullan af mönnum.

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 15:00

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Stelpukindin Kristjana

Fær sér vænan banana

teflir svo við monthana

og vinnur íselí

við segjum hí hí hí

þett´er eins og að drekka úr krana.

(vá hvað þessi var skelfileg  )

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 15:14

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Rétt mun það vera að Ægir í lautu

situr og vinnur verkin fín

verra það er að bossinn er blautu (r)

er yrkir hann skákljóðin sín

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 16:58

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Brattur verður ofsa hress

er sér hann svo laglega kveðið

hann hefð´ekki átt að segja bless

hann hefði svo vel getað beðið ! 

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 17:01

10 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hér kemur eitt djúpt.: 

Bí bí og blaka,

álftirnar kvaka.

Brattur að taka,

boðsund til baka.

Halldór Egill Guðnason, 16.7.2007 kl. 19:40

11 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ægir...!!!! Hvar ertu??? I need some help out here!!!

Halldór Egill Guðnason, 16.7.2007 kl. 19:41

12 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

OK Ægir. Þetta verður allt í lagi. Þarft ekkert að flýta þér. Er í góðum höndum.

Halldór Egill Guðnason, 16.7.2007 kl. 20:22

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Til lukku með WC-ið

og mikið var

má nú nota klósettið

og kú..  þar ?

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 21:16

14 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Gísli minn!

Hefurðu verið - það sem bloggarar kalla "KLUKKAÐUR".

Ég lét mig hafa það að "klukkast" sem þýðir víst að maður (eða kona - nema konur séu líka menn?) segir okkur hinum átta atriði um sjálft sig = eitthvað ekki kemur fram á blogginu =

Ertu úlfur í sauðagæru?

EÐA

Lamb í úlfagæru:

Allavega = KLUKK

Ásgeir Rúnar Helgason, 16.7.2007 kl. 21:22

15 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Of seint var hann í rassinn gripinn

strákurinn að heiman er  í dag

áður var hann klukkaður og klipinn

af mér,  já maður kann sko mitt fag.

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 21:29

16 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Sorry,

Stína (og Stjáni),

kvæði og vísur á stuðla og höfuðstafa eru eins og Þú án Þín!

Ásgeir Rúnar Helgason, 16.7.2007 kl. 21:30

17 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

"My man"!!! Bara mættur

Halldór Egill Guðnason, 16.7.2007 kl. 21:30

18 Smámynd: Anna Einarsdóttir

sitt fag........ ohhh...... orðin renna viðstöðulaust og óritskoðuð út í loftið.

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 21:31

19 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Sorry sagði Ásgeir svo og brosti

vill reglurnar í lag, einn og tveir  (og þrír) 

ótvíræða hefur það þó kosti

að þurfa bara að ríma og ekkert meir.

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 21:34

20 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Hún er dásemd margra manna

 

 

mærin Einarsdóttir Anna.

 

 

Er hún þessi eina sanna,

 

Óska dís og draumur svanna?

Ásgeir Rúnar Helgason, 16.7.2007 kl. 21:42

21 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Anna hún er draumurinn

því hún er engin kjéddling 

úr haus var tekinn saumurinn

hún hefur lagast helling 

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 21:50

22 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Brattur borðar mjólkurkex

og svo hann hugsar mikið

kannski vill hann núna sex

bita af norðlensku hangikjöti.

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 21:57

23 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Kristjana og Anna góðar,

rólegar og "hot"

þær verða ekki alveg óðar

þó Ægir vangi flott

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 22:12

24 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Ein hún situr

í svörtum klæðum,

- sæl og hljóð.

Ein hún situr

- bergir blóðóð,

blíð og rjóð.

Teigar bikarinn í botn,

- brosir hljóð!

EÐA :::: Hvílíkt aula kúka....skíta

... en SAMT....

ég FÍlA "hallærislega" rómantík:

---------------

Ásgeir Rúnar Helgason, 16.7.2007 kl. 22:13

25 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ertu búinn laugina að fylla

af vatni Ægir

þetta er bara pínulítil sylla

þetta nægir.

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 22:19

26 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Í pilsi mæta skaltu skota

og ekkert múður

annars steyti hnefa, pota

og gef þér á lúður 

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 22:23

27 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

ok

Ásgeir Rúnar Helgason, 16.7.2007 kl. 22:38

28 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Kristjana hún toppar ykkur alla

hæfileikar hennar ná til fjalla 

hef aldrei vitað þetta marga kalla

með svo feiki-litlum mjalla.

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 22:46

29 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Drengir óðir,  það passar ekki

því drengurinn er einn

Róaðu þig nú Ægir óþekki

þegðiu eins og steinn.

(bara vel meint, vel meint - þetta rímaði)    

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 23:09

30 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Dóri við aspirnar berst

og sigurinn vinnur hann varla

annað eins hefur jú gerst

á skákborði ljúfustu karla.

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 23:24

31 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hundurinn í miklum spreng

eiganda sinn áfram dregur,

ég stundum er í einum keng

því Halldórinn er skemmtilegur.

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 23:28

32 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Anna!

Ég þekki þig ekki rassgat.

En þú skrifar skemmtilegar færslur:

---------------------------------------------------

 Ég þrái vetur og dimma daga

dula náttúru, vindsins gnauð.

Ég hata hljómhviður lífsins laga,

og lilja vallarins best er dauð.

Lifi fjalldrapinn!

Ásgeir Rúnar Helgason, 16.7.2007 kl. 23:28

33 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ægir ekki þegja lengur

þetta var bara grín

komdu hingað aftur drengur

því við söknum þín.

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 23:29

34 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Lifi fjalldrapinn........ og öll hans fjölskylda.    Takkes Ásgeir.

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 23:30

35 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Litla klára konu á

Brattur vinur okkar

það er alveg af og frá

hún leyfi "hvítir sokkar"

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 23:56

36 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Skrollið Halldórs mýslu á

skemmdist víst í gær

ætl´ann geti ekki þá

skrollað niðr´í tær ?

Anna Einarsdóttir, 16.7.2007 kl. 23:58

37 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Brattur fór í útilegu, allgóða

og spússu sína með hann tók

síðan hans er stútfull góðra ljóða

skyld´ann gefa út ljóðabók ?

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 00:08

38 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ofvirk Anna Einars er,

því er ekki að neita, 

Með ofsa látum konan fer.

keppnisfólki að leita.

Þar sem kominn er nýr dagur og partýið senn á enda. 

ræ ég á önnur mið og leita nýrra kennda.

Í bólið til karlsins læðist ég nú,

og haga mér eins og nýbökuð frú.

Guð gefi ykkur öllum góða nótt og sofið rótt.

Hittumst kát og hress í fyrramálið með nýjan þrótt.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 17.7.2007 kl. 00:12

39 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ofvirknin mun efla mig

áfram yrki fram á nótt

segi "sofðu vel" við þig

ég skal reyn´að hafa hljótt.

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 00:17

40 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Engin læti eru í mér,  Inga 

mér auðvelt reynist iðulega að

laða að mér skáld og snillinga

þeir koma eins og mý á tað. 

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 00:21

41 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Í bridds þú ekki höndlar mig

Ægir, það er góður siður

að svína djúpt og blikka þig 

en setja þig svo átta niður. 

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 00:43

42 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hei!!! 

Skrapp bara út að vökva garðinn.! Partíið bara  á fullu

Þarf að "rotta" mig í gegnum kveðskapinn.

Halldór Egill Guðnason, 17.7.2007 kl. 00:55

43 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Var ég búin að segja þér

að framtíð á ég fagra ?

landslið kvenna opnast mér

er verð ég sextíuogfjögra.

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 00:56

44 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Halldór hann er upptekinn

vökvar garðinn sjálfur

viðrar síðan hundinn sinn

skyld´ann vera hálfur ?

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 00:58

45 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Dóri með Ösku að pissa fór, (Altso Ösku)

var lengur en til stóðu efni.

Þurfti nefnlega að vökva tré stór,

hverrar tegundar ekki nefni. (Andskotans aspir)

Halldór Egill Guðnason, 17.7.2007 kl. 01:02

46 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Æi Brattur, það vantar þig

þótt drengir séu hér fríðir

Arnfinnur er að missa sig

því skákmóti hann kvíðir

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 01:02

47 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Helvítis aspirnar öllu ráða

þær vaða um með sóma og sann

Halldór getur ei gengið til náða

sem betur fer,  þá yrkir hann

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 01:04

48 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Halldór áttu nýja mús í dag

sem skrollar eins og flaug í geim  

þetta þarf að komast strax í lag

því á morgun kemur Brattur heim

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 01:13

49 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Rottuskrattinn líka að klikka!

hár mitt ríf og garga!

Reyni á alla takka að pikka,

virka finn ei marga

Halldór Egill Guðnason, 17.7.2007 kl. 01:18

50 Smámynd: Anna Einarsdóttir

  Ekki missa alveg vitið

minn kæri vinur Halldór

hvernig sem að á er litið

þú persóna ert stór

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 01:24

51 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ég sakna þín Brattur svo ósköp heitt,

nú drengirnir tættir af (kven)vörgum.

Í kvöld var það kvenkynið fríítt, en hárbeitt,

sem snaraði drápum fram mörgum- og.....

Halldór gat ekki neitt.

Og...:

Rottan í tætlum og kúlan í klessu,

skila bara andskotann ekkert í þessu.

Aska að míga út í eitt,

en Dóri bloggar ekki neitt.

"Oh what a night"

Halldór Egill Guðnason, 17.7.2007 kl. 01:26

52 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ó mig auma !  Við vargar ei erum

við bara stundum í buxurnar gerum

og við því er ekki að gera neitt 

Við þurfum að hafa það alveg á hreinu

að lát´ekki stákana setj´oss í kleinu

því sit ég og yrki hér bullandi sveitt.

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 01:32

53 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Næstu vikur mun Brattur bara

tala í bundnu mál´og hann hlær  

hann hefði sko ekki átt að fara

frá okkur bloggvinum, honum var nær 

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 01:49

54 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nú eina vísu vantar í bálkinn

svo tugunum átta þær nái í dag

Brattur á morgun verður í dálkinn

ei daufur - hann semur nú líklega lag. 

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 01:52

55 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ein "vísa" yfir áttunda tuginn,

læðist seint hér inn.

Á rottunni vann ég buginn,

Anna og Brattur minn. 

Tæknin með öll sín tól,

fyrir dyr mínar setur stól.

Tuðari með garg og gól,

baslar við rottunnar hjól.

Bölvaður asni "mar" er,

að glepjast af sölumannsher.

Sem sífellt í fang manni ber,

einskis nýtt rusl, "not fair"  

Halldór Egill Guðnason, 17.7.2007 kl. 03:02

56 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

(Alltaf síðastur í koju)

Halldór Egill Guðnason, 17.7.2007 kl. 03:03

57 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Fyrst á fætur

bjartar nætur

eigi svefninn hvetja

daginn hyggst ég setja

--------

Aldrei annað eins kommentavísufjöld

prýtt hafa bloggsins spjöld

hagmæltir bloggsins snillar

andans stóru millar

(Þetta

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 17.7.2007 kl. 05:29

58 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Nú tók tölvan yfir og birti færsluna áður en hún var búin. Framhald innan sviga:

(Þetta var sjokkhenda í leirburðarstíl, ættuð úr synapsa-sammenstuði).

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 17.7.2007 kl. 05:30

59 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei daginn ! Brattur minn sæll

af heilmiklu fjöri þú misstir

á okkur var töffarastæll

og þóttumst við sýna hér listir

við ljóðin þú getur nú samið

lög handa ömmum og öfum

á gítarinn getur þau lamið

og kyrjað með há...stöfum

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 08:59

60 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ó hve létt er þitt skóhljóð

ó hve lengi ég beið þín

ó ég er að verða snaróð

ó ég skammast svo mín

ó ég meiddi mig í fingur

ó ég er jú vitleysingur

en svo kemur þú á bloggið

hér á bloggið til mín.

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 11:46

61 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Höfuð, herðar, hné og tær, hné og tær

Hér var partýið í gær, já í gær

ertu ekki að far´að koma heim

Höfuð, herðar, hné og tær, Brattur kær.

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 19:24

62 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú hefðir átt að koma hér í mat

ég er búin að borða á mig gat

Túkall og saltkjöt og baunirnar át

er alveg að springa en samt býsna kát. 

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 19:29

63 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ein ég sit og yrki

inn á þessu bloggi

enginn kemur að tjá sig

nema ónýta músin hans Dóra

Gleymdi að ríma

hafði ekki tíma

var að tal´í síma

bentu á þann sem að þér þykir bestur.

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 19:33

64 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Af níutíu vísna blogginu nú fengið nóg ég hef

og ætla bara ekk´að yrkja meira

fyrir ekta skáldskap ég ekki hef neitt nef

og fyrir lagi heldur ekki eyra.

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 19:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband