Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007
Í aldanna skaut
31.12.2007 | 02:33
Depill sá lipri köttur
Læðist loðinn um gólf
Síðasti dagur ársins
Konan við arineldinn
Vefur sig þétt Inn í feldinn
Hundurinn liggur og dottarKarlinn vindilinn tottar
Nú árið er horfið á braut
Liðast reykur Í aldanna skaut
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Tvær sálir
30.12.2007 | 18:52
Svo undarlegt er sálir mætast tvær
sem þekkjast síðan einhvern tíma fyrr
þar birtist sanna ástin, alveg tær
og hugurinn er sáttur, glaður, kyrr
.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þú verður að standa þig!
29.12.2007 | 22:09
... er ekki alltaf pressa á okkur að standa okkur og gera betur á hverjum degi?... ég er nokkuð viss um að allir upplifi það af og til að kvöldi dags, að þeir hefðu nú getað gert betur... og lofa sjálfum sér að gera betur á morgun...
Þú verður að standa þig.
Liðið er sumar
Komið dimmt haust
Allt rennur áfram
Endalaust
Í sorg og í gleði
Við fellum tár
Verða að einu
Öll liðin ár
Þú verður að standa þig
Þú verður að vanda þig
Þú verður að standa þig
Og gera betur
Í dag en í gær
Hamingjan sanna
Staldrar um stund
Svo er hún rokinn
Á annarra fund
Oft er í fangið
Vindurinn hvass
Þá snýrðu þér undan
Hann lemur þinn rass
Þú verður að standa þig
Þú verður að vanda þig
Þú verður að standa þig
Og gera betur
Í dag en í gær
.
.
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fallegt um vetur
28.12.2007 | 20:52
... rosalega getur verið fallegt um að litast þegar vetur konungur ræður ríkjum...
... hér er mynd sem ég tók í Mývatnssveit fyrir einhverju síðan...
... læt hér flakka með gamla vísu eftir Þingeying... þetta er í flokki vísna sem enda snögglega og hafa óvæntan endi... vek sérstaka athygli á því að það er ekki prentvilla í síðasta orðinu í vísunni...
Þar er sumar og sól og sandkassaveður
það kom gríðarlegt frost eftir gleðileg jól
ég fékk gæsahúð meður.
.
.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fótbolti - leyndarmáli ljóstrað upp
28.12.2007 | 00:54
... eina kalda minningu á ég frá fótboltaleik heima á Ólafsfirði... það var komið haust og Völsungur frá Húsavík var kominn í heimsókn að spila leik, líklega í þriðja flokki... við Leiftursmenn áttum enga búninga þá... en við strákarnir komum okkur saman um að vera í hvítum skyrtum... eina hvíta skyrtan sem ég átti var nælonskyrta... við mættum á malarvöllinn okkar, grófa, sem stundum var uppnefndur "Hraunprýði"...
... það var nístingskuldi og slydda... leikurinn hófst og okkur gekk vel... skoruðum nokkur mörk en fengum ekkert á okkur, vörnin var feiknagóð... ég var í vörn og fannst við reyndar vera óvenju fjölmennir þarna bakatil... ég fór því að telja leikmennina og komast að þeirri niðurstöðu að við Ólafsfirðingar værum 12 á vellinum... en eins og allir vita eru leikmenn í einu liði bara 11... ég sagði félaga mínum í vörninni frá þessu og ákváðum við að grjóthalda kj... um þetta...
.
.
... leikurinn vannst 4-0... dómarinn sá ekki neitt athugavert...
... nú sem sagt uppljóstra ég þessu mikla leyndarmáli... enda ekki hægt að kæra lengur... held ég...
... en mikið rosalega var mér orðið kalt í nælonskyrtunni í slyddunni... það fer enn hrollur um mig þegar ég hugsa um það....
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hvar er besti veiðistaðurinn?
27.12.2007 | 11:47
... á þessum tíma árs er ekki óalgengt að veiðimenn fari að hugsa um veiði og rifa upp veiðisögur til að stytta biðina...
... einu sinni var bóndi einn sem skrollaði mikið, spurður til vega, hvar best væri nú að henda flugu fyrir urriða...
... uRRiða, segið þið... hmm...
Þið skuluð Rölta eftiR Rollustígnum þaRna
þaR til þið komið að gRein sem slúttiR út yfiR fRussið
þá skuluð þið taka stReameR, gRænan eða Rauðan
og kasta honum út yfiR stRauminnþá kemuR uRRiðinn og hRemmiR hann...
.
.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aðfangadagur
23.12.2007 | 22:09
... í október bloggaði ég um það, að það eina sem mig vantaði fyrir jólin væri pottur til að búa til uppstúf í fyrir jólin... nú á ég hann... og búinn að æfa mig á honum... hann reynist mjög vel og ef eitthvað klikkar með jafninginn þá get ég ekki kennt pottinum um frekar en fótboltamaðurinn skónum, ef hann brennir af í dauðafæri....
... en sem sagt, þarna í október... borðaði ég hangikjöt í góðum félagsskap í sumarbústað...
... ógleymanleg helgi reyndar... en hennar saga verður ekki rakin frekar...
... hef ekki borðað hangikjöt síðan og hlakka mikið til að borða það á jóladag... verið að sjóða það núna og ilmurinn er vægast sagt ljúfur... held að maður eigi ekki að troða sig út af hangikjöti á jólahlaðborðum og öðru slíku í desember... þá er hætt við að manni hlakki ekkert til að borða það þegar kemur að jólum...
... þetta ljóð um jól æsku minnar birti ég í október, en endurtek það hérna vegna þess að það munaði litlu að ég fengi áskorun um það....
.
.
Aðfangadagur.
Mikið var mjöllin mjúk
í firðinum forðum
alvöru jólasnjór
í stofunni var allt klárt
gervitréð bómullarkirkjan
allir pakkarnir
Prins Valiant
til: þín
frá: mér
Fimm á Fagurey
pakkar með slaufum
tryllingslegur ilmurinn
úr eldhúsinu
blindfullir kökudunkar
hálfmánar vanilluhringir
laufabrauð svindl -
og kornflekskökubirgðir
minni en mamma hélt
klukkan sex
heims um ból
helg eru jól
heilagt
tíu mínútum
síðar bein á hátíðarborðinu
etinn heimatilbúinn ís
smyglað Machintosh
drukkið jólaöl
framundir morgun
með bóklestrinum
ó, hver dýrðlegt var að sofna þá
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Að bíða eftir jólunum
23.12.2007 | 01:13
... jólin alveg að detta inn... ég bara ligg afturábak og bíð eftir þeim... allt klárt... pakkarnir, maturinn...þrifin... fallegt og hlýlegt heimili, með margbreytilegu jólaskrauti, sumt gamalt skraut, persónulegt og sérlega fallegt... sem gefur því sérstakt gildi... öllu komið fyrir á afar smekklegan hátt... jólaljósin mild og róandi,ótrúlega góð tilfinning sem fylgir því að sjá hvernig allt þetta myndar jólastemmingu... og maður sjálfur hrífst með... og fyllist jólaandanum... og ég þakka fyrir mig...
... þakka yndislegri vinkonu fyrir að búa til þessa fallegu umgjörð...
Gleðileg jól!
.
.
.
.
.
.
.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Slappaðu af Tími
22.12.2007 | 00:11
... það er alltaf jafn skrítið að hugsa um tímann... það eru að koma jól... dimmasti tími ársins... en samt er svo stutt í janúar... og dag tekur að lengja hægt, en bítandi... og svo áður en maður veit af eru komnir Páskar... og svo sumar og svo haust og svo aftur jól... ja hérna... vá, hvað tíminn flýgur...
... og svo koma stundir þar sem tíminn virðist standa kyrr, og maður vill innst inni að hann sé bara kyrr og slappi af... já, af hverju tyllir þú þér bara ekki niður Tími hérna hjá mér og við skulum eiga góða stund saman? Mér líður vel og ég vil ekkert að þú sért að draga mig áfram... tökum því bara rólega, kæri vinur...
... en allt er breytingum undirorpið og allt er í heiminum hverfult...
... Tíminn; já, en ég er ekkert að flýta mér... ég ferðast alltaf á sama hraðanum... þú verður bara að kunna á mig og njóta þess að ferðast með mér... það eru allir að ferðast með mér... ekki láta þér leiðast, njóttu ferðarinnar... láttu þig dreyma...
Ég; já.... dreyma... það er kannski ekki svo vitlaus hugmynd... best að fara að leggja sig...
.
.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Skarphéðinn Skata - seinni hluti
20.12.2007 | 22:37
Mannkertið fór heim til sín og sagði fólki söguna af buxunum sem lifnuðu við og syntu á haf út. Fólk hló að þessari lygasögu Skarphéðins og taldi að nú væri hann endanlega orðinn ga ga.
Nokkru fyrir jól voru menn svo að veiðum. Drógu þeir þá mjög sérkennilegan fisk úr sjó.
Þeir sáu fljótt að augun í skepnunni voru alveg eins og tölurnar sem höfðu verið í buxunum hans Skarphéðins og spíssinn, eða sporðurinn á skepnunni, sem hann hafði talað um að hefði runnið út úr höndunum á sér, var alveg eins og hann hafði lýst.
Sjómennirnir fóru beint heim til Skarphéðins Skötu um leið og þeir komu að landi og sýndu honum fiskinn. Og það fór ekki milli mála,þarna voru buxurnar hans lifandi, en dauðar, komnar aftur.
Eigum við ekki að éta fiskinn sögðu menn. Nei, sagði Skarphéðinn, við étum ekki buxurnar mínar. Kemur ekki til mála. Ég vil grafa þær. Og það var engu tauti við hann komið. Skarphéðinn hélt sína jarðarför og gróf buxurnar í fjörukambinn.
Þegar komið var að jólum, hafði geisað óveður í marga daga og ekki gefið á sjó. Var orðið matarlítið þegar dagurinn áður en jólin byrjuðu rann upp. Ekki vildu menn borða jólamatinn of snemma.
Datt þá einhverjum í hug að grafa upp fiskinn eða buxurnar hans Skarphéðins Skötu og sjá hvort ekki mætti seðja hungur sitt á þeim.
Var þetta grafið upp og farið með inn í eldhús og fleygt í pott. Gaus þá upp þessi svakalega fýla svo fólk þurfti að flýja hús. En hungrið var svo mikið að fólk lét sig hafa það að fara aftur inn að hlóðunum og veiða upp buxnafiskinn og smakka á.
Og viti menn, þetta var ekki vont, alls ekki eins vont og lyktin. Færum Skarpa einn bita sagði einhver. Og honum var færður bitinn. Hann var glaður að fá matarbita og þakkaði fyrir sig og spurði hvað þetta væri. Þá var honum sögð öll sagan og allur sannleikurinn. Skarphéðinn reiddist í fyrstu en svo, þrátt fyrir heimsku sína og einfeldni, sá hann að kannski væri þarna kominn hlutur, matur, sem gæti gert hann frægan. Hann sagði: Ég fyrirgef ykkur ef ég má nefna fiskinn í höfuðið á mér, hann varð þó til úr buxunum mínum, ekki satt? Þetta samþykktu allir með glöðu gleði. En, sagði þó einhver, það er ekki hægt að kalla fisk Skarphéðinn, nei greip Skarphéðinn frammí. En finnst ykkur ekki kúl að nota millinafnið mitt, Skata?
.
.
Jú, þetta fannst öllum kúl svo það var samþykkt og meira að segja Laufa systir smellti kossi á kinn bróður síns. Hún var stolt og ánægð með afrek hans. Eftir þetta veiddust margar skötur og voru grafnar í fjörukambinn heima hjá Laufu sem fann upp Laufabrauðið og Skarphéðni Skötu sem fann upp Skötuna. Daginn fyrir Aðfangadag hvert ár eftir þetta hittust allir í þorpinu í félagsheimilinu Stybbunni og borðuðu Skötuna sína við langborð. Og þá var nú Skarphéðinn Skata heldur betur í essinu sínu.
..
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)