Þú verður að standa þig!

... er ekki alltaf pressa á okkur að standa okkur og gera betur á hverjum degi?... ég er nokkuð viss um að allir upplifi það af og til að kvöldi dags, að þeir hefðu nú getað gert betur... og lofa sjálfum sér að gera betur á morgun...

Þú verður að standa þig. 
 

Liðið er sumar
Komið dimmt haust
Allt rennur áfram
Endalaust 

Í sorg og í gleði
Við fellum tár
Verða að einu
Öll liðin ár 

Þú verður að standa þig
Þú verður að vanda þig
Þú verður að standa þig 

Og gera betur
Í dag en í gær              

Hamingjan sanna
Staldrar um stund
Svo er hún rokinn
Á annarra fund

Oft er í fangið
Vindurinn hvass
Þá snýrðu þér undan
Hann lemur þinn rass 

Þú verður að standa þig
Þú verður að vanda þig
Þú verður að standa þig 

Og gera betur
Í dag en í gær            

.

 foxes

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Meira í dag en í gær

og bjallan hringir

stattu þig, strákur

svífðu yfir Vatnshólana,

éttu skósólana, 

Stattu þig frái fákur,

Kemur stór skessa

strax og fer að hvessa.

Leystist úr læðingi, 

í þessum næðingi.

síðasta línan kemur seinna.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 29.12.2007 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband