Pekka

... einu sinni kunni ég Pekka og Nurmi brandara... þeir kumpánar lentu í ýmsum hremmingum á æviskeiði sínu og þótti sopinn verulega góður....
Sá sem sagði mér þessa Pekka brandara fór með þá á íslensku með blöndu af einhverri óskilgreindri skandinavísku... best að sjá hvort ég kann einhvern ennþá...

Einu sinni var Pekka að veiða á Kekkonen-söen í gegnum vök. Það var 50 stiga gaddur en Pekka var ekki með neina húfu.
Maður kemur til hans og spyr; Af hverju ertu ekki með húfu Pekka í þessu rosalega frosti?

Har du ikke hört um den stora ulikka på Kekkonen-söen sidste år? Svaraði Pekka.

Nei, maðurinn hafði ekkert heyrt um þetta stórslys... hvað gerðist eiginlega?

Ju, svarði Pekka. Það var þannig að til mín kom maður og bauð mér snafs; og jeg hörte det ikke.

.

MC_EVN19

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Já - ef þetta flokkast ekki undir stórslys........

Hrönn Sigurðardóttir, 13.10.2008 kl. 09:29

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Mikið skil ég Pekka vel . Fyrr léti maður hnappinn á sér frjósa en að taka sjensinn á að missa af eins og einum sjúss. 

Halldór Egill Guðnason, 17.10.2008 kl. 01:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband