Verðlaun í boði

... þegar maður drekkur brennivín, þá er sagt að maður sé ýmist fullur, eða hálfur... hífaður, slompaður, góðglaður... blindfullur... sauðdrukkinn...

en þegar maður drekkur ekki brennivín, þá er maður bara edrú... ekki hálf edrú, ekki blindedrú, eða edrúglaður... eða jafnvel sauðedrú... en maður jú getur verið bláedrú, en sjaldan bláfullur... uss... hvað þetta er allt skrýtið...

... en þarna finnst mér íslenskan sem sagt halda með þeim fulla...

Auglýsi ég því hér með eftir fleiri orðum yfir það ástand að vera edrú.

Besta tillagan hlýtur vegleg verðlaun... vísa, ljóð eða örsaga um vinningshafann... og 1 lítri af íslensku ísköldu blávatni... hik...

.

 feature-water2LG

.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Það er gott að vera snúrubrattur Brattur...

Guðni Már Henningsson, 18.7.2008 kl. 00:01

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Allsgáður, áttaður á stað og stund, ódrukkinn, snúraður, þurr.  Jájá.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.7.2008 kl. 00:14

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Stundum er ég ófullur. Ekki oft, en kemur fyrir. Kann ágætlega við þetta orð "ófullur" og finnst það lýsa ástandinu býsna vel. Nú síðan er ég stundum fullur, blindfullur eða jafnvel svartfullur. Ég er með öðrum orðum alltaf fullur samkvæmt þessu, ekki satt Brattur minn? Það er reyndar ansi mikill munur á því að vera ófullur og svartfullur, en það breytir því ekki að ég er fullur í báðum tilvikum.

Halldór Egill Guðnason, 18.7.2008 kl. 01:46

4 Smámynd: Brattur

Ég var búinn að gleyma þessu orði "allsgáður"...  ég veit nokkurn veginn hvað "alls"þýðir, en hef ekki hugmynd um hvað "gáður" þýðir....

... svo getur maður líka verið fullur bjartsýni....

Brattur, 18.7.2008 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband