Gaman að lifa

Svakalega góð helgi að verða búin og vinnan framundan í vikunni... verður brjálað að gera alla vikuna, en svo er stefnan fljótlega sett norður á Tröllaskagann í heimahagana...  á fótboltamót... Nikulásarmót... skrítið nafn á fótboltamóti... en það er saga á bak við það sem ég segi vonandi síðar.

Kannski keyrum við Fljótin, sem er ein fallegasta leið sem ég keyri... við stoppum líklega á há Lágheiðinni og teygjum úr okkur... á þeirri leið er hús, Miðbær, sem einu sinni var í miðjum heimabæ mínum, Ólafsfirði... í þessu húsi fæddist ég... er semsagt af svokallaðri Miðbæjarætt.

.

677772968_4c4b03f921

.

Það er alltaf eitthvað til að hlakka til í þessu lífi... en svo má ekki gleyma að njóta daganna sem líða þar til það sem maður hlakkar til rennur upp... þeir geta verið svo frábærir líka...

Við tökum með okkur veiðistangir og reynum að veiða þorsk, ýsu eða ufsa á bryggjunni... á þeim stað hékk ég öllum stundum ungur strákur með vinum mínum... veiddum þessar tegundir og þar að auki rauðmaga, steinbít, lúðu, kola og náttúrulega þann skrautlegasta marhnút... en maður hirðir ekki marhnútinn... heldur skyrpir upp í hann og biður hann um að gefa sér vænan fisk og svo er honum sleppt í sjóinn aftur...

.

marhnutur

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Efsta myndin er æðisleg.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 6.7.2008 kl. 22:05

2 Smámynd: JEG

Efri myndin er svakalega flott.

Já það er fallegt á Lágheiði hef einu sinni farið hana og vá þar er fegurð. Algerlega annar heimur.

Kveðja úr sveitinni.

P.s. forvitnin rak mig til að kíkja hingað inn.

JEG, 6.7.2008 kl. 23:05

3 identicon

Landslagsmyndin er flott

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.7.2008 kl. 23:27

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Á há Lágheiðinni.......? Ég verð að fara að hysja upp um mig ferðabrókina og skoða þetta fyrirbæri. Er Lágheiðin kannski bara hola?

Hvernig stóða annars á því að þeir fluttu Miðbæinn úr Ólafsfirði inn á heiðar? Eru kannski Miðbæjarvandamál á fleiri stöðum en í henni Reykjavík, ha? Annars flott mynd af heiðinni....holunni...., verð að skoða þetta til að skilja betur

Halldór Egill Guðnason, 7.7.2008 kl. 01:54

5 Smámynd: Gulli litli

Ég vissi ad tú værir ad nordan...

Gulli litli, 7.7.2008 kl. 04:38

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ég fer oftlega Lágheiðina, Fljótin & Þverárfjallið af umhverfissjónarmiðum.

Allt gott fólk kemur að norðan ... 

Steingrímur Helgason, 7.7.2008 kl. 11:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband