Spjall

Heyrðu, hvað heldur þú að það séu eiginlega margar stjörnur í himingeimnum?

Ég held þær séu ekki óteljandi, það hlýtur að vera hægt að telja allt sem til er.

Þú segir það.

Já.

En heldur þú að það sé líf á öðrum hnöttum?

Já, ég er alveg viss um það.

Nú, hvað hefur þú fyrir þér í því?

Þig, þú ert svo furðulegur að þú hlýtur að vera frá Mars eða Snickers eða eitthvað svoleiðis.

Þú ert sjálfur stór skrítinn... ég held að þú sért frá plánetunni Apríkósu.

Æi... við skulum ekki þrasa, verum vinir og þegjum smá stund saman.

Já, satt segirðu, lífið er alltof stutt til að vera að eyða tímanum í það að nöldra.

OK - einn tveir og sjö - þögn, vinur.

.

 4813296-lg

 

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég hef meiri áhuga á myndinni núna en textanum, hvaðan er hún?

Ég nebbilega veit hvað það eru margar stjörnur í himinhvolfinu með jörð, tungli og sól! SVAR: hundraðmilljónir og níuhundruð, sjötíu eitt þúsund!

Edda Agnarsdóttir, 17.6.2008 kl. 02:05

2 Smámynd: Brattur

Ef ég vissi það nú Edda. Fann hana bara á netinu.

En svarið er nokkuð rétt hjá þér... en nákvæmlega eru þær, hundraðmilljónir og níuhundruð, sjötíu og eitt þúsund tuttugu og þrjár.

Brattur, 17.6.2008 kl. 10:12

3 Smámynd: Einar Indriðason

:-)

(Innlitskvitt, án gáfulegra (eða ekki gáfulegra) athugasemda)

Einar Indriðason, 17.6.2008 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband