Geisp

Það er ekki nýtt að fólk velti vöngum yfir tímanum.

Hvernig við notum hann... það er bruðl að sofa finnst mér... en algjör nauðsyn, því miður... en það fer ansi mikill tími í þá athöfn. Við getum svo sem ekki mikið gert í því hvað við gerum sofandi en heilmikið í því hvað við gerum vakandi.

Hef stundum hugsað út í það hvernig það væri ef við þyrftum aldrei að sofa.

Úff.. já pælið í því maður, baka pönnukökur á nóttunni, skúra gólfin klukkan fimm á morgnanna, verða aldrei syfjaður og þreyttur... og það sem versta væri... maður geispaði aldrei... ég myndi sakna þess...

.

 sleepy_flower_121906

.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þá væru hugsanlega vinnutíminn 16 tímar á sólarhring.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 15.6.2008 kl. 14:40

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Úff! Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda........

Hrönn Sigurðardóttir, 15.6.2008 kl. 14:42

3 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir Alveg er það stórfurðulegt, en ég var akkúrat að enda á send á kommenti til Fanneyjar áðan ..... um this very same subject:

Sko, klukkan, tíminn ..... Ég er að hugsa um að sækja um (þarna á efstu hæðinni) að maður þurfi að sofa færri stundir og geti því notað fleiri í annað .... Meiri sóunin að vera meðvitundarlaus hluta úr sólarhringnum á meðan allt bíður sem maður á eftir að gera --- og það styttist í annan endann..!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 15.6.2008 kl. 20:50

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

PS:  Þetta er systir mín sem er þarna við hliðina á mér .....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 15.6.2008 kl. 20:51

5 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Rosalega eruð þið líkar Guðný Anna.........

Hrönn Sigurðardóttir, 15.6.2008 kl. 23:59

6 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Já við erum ansi líkar. Hún er samt miklu leiðinlegri en ég.

Sá að ég gerði verulega skondnar innsláttarvillur: ..... var akkúrat að enda við að senda komment til F ....  átti þetta að vera.  

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 16.6.2008 kl. 08:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband