Heiðarleikinn

Heiðarleikinn er hollur ferðafélagi. 

Rakst á nokkrar tilvitnanir um heiðarleikann.

Hér eru sýnishorn af því sem mér fannst best.

Engin manneskja er með nógu gott minni til að ná góðum árangri sem lygari. (Abraham Lincon)

Ef þú segir alltaf satt þarft þú ekki að muna neitt. (Mark Twain)

Öll lifum við aðeins einu sinni; ef við erum heiðarleg, þá er nóg að lifa einu sinni. (Greta Garbo)

Segðu alltaf sannleikann. Ef þú getur ekki alltaf sagt sannleikann, ekki ljúga. (NN)

.

 MzYzMTA2_large

.

Vertu heiðarlegur við sjálfan þig,  þá mun lífið strjúka þér um vangann. (Brattur)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Væri lygin latína væru margir lærðir.  (danskt orðtak)

Edda Agnarsdóttir, 17.6.2008 kl. 22:39

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jamm - það þarf nefnilega ansvítans árans gott minni til að vera óheiðarlegur!

Hrönn Sigurðardóttir, 17.6.2008 kl. 22:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband