Mikill höfðingi.
17.5.2009 | 13:35
Einu sinni var indíánahöfðingi sem fékk hægðatregðu. Hann sendi þjón sinn til galdralæknisins til að fá mixtúru við þessu.
Þjóninn kom til galdrakarlsins og sagði;
Mikill höfðingi, enginn kúkur !
Galdralæknirinn blandaði handa honum seið til að losa stífluna sem þjónninn fór með til höfðingjans.
Daginn eftir kom þjónninn aftur til galdralækninsins og sagði;
Mikill höfðingi, enginn kúkur !
Mixtúrann hafði sem sagt ekki virkað.
Galdrakarlinn blandaði nú enn sterkari seið sem þjónninn færði höfðingjanum.
Á þriðja degi kemur þjónninn og er vonsvikinn;
Mikill höfðingi, enginn kúkur !
Svona gekk þetta í nokkra daga í viðbót. Alltaf blandar galdrakarlinn sterkari og sterkari seið en ekkert gengur.
Alltaf kemur þjónninn með sama svarið:
Mikill höfðingi, enginn kúkur !
Galdrakarlinn blandar nú stærri og sterkari blöndu en hann hefur nokkurn tímann gert áður. Ef þetta virkar ekki þá veit ég ekki hvað, hugsaði galdrakarlinn.
Færðu höfðingjanum þetta og láttu hann drekka alla flöskuna í einu, þetta er rosalega öflugt.
Þjónninn fer til baka með mjöðinn en kemur fljótlega hlaupandi til galdrakarlsins aftur og hrópar skelfingu lostinn:
Mikill kúkur, enginn höfðingi !
.
.
Athugasemdir
þetta var væntanlega sioux höfðinginn Stóri lortur.
Brjánn Guðjónsson, 17.5.2009 kl. 15:15
Alltaf gaman að svona sögum :-D
Einar Indriðason, 17.5.2009 kl. 18:10
hahhaha
Hrönn Sigurðardóttir, 17.5.2009 kl. 22:31
The big LORD!
Ingibjörg Friðriksdóttir, 18.5.2009 kl. 14:57
Hehheh ekki slæmur þessi, minnir mig á það sem Siggi tanni sagði, Það er enginn vandi að skíta með fullt rassgatið, uss uss uss. Má ekki birta svona lagað. Með beztu kveðju.
Bumba, 21.5.2009 kl. 10:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.