Auðmannafangelsi
18.4.2009 | 13:58
ÖND-VEGIS-FLOKKURINN mun berjast með kjafti og klóm fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn vinni ekki fylgi af honum þá viku sem til stefnu er fram að kosningum.
Hvaða flokkur hefur öflugri og skýrari sýn heldur en...
ÖND-VEGIS-FLOKKURINN?
Ö ER EKKERT BÖ!
Ö er ekkert bö segir nákvæmlega allt sem segja þarf um stefnu flokksins.
Eins og áður hefur komið fram er aðal mál flokksins að flytja inn mörgæsir og sleppa þeim á Vatnajökul. Bora svo jarðgöng frá Bolungarvík að Vatnajökli. En aðeins um þessi jarðgöng verði möguleiki fyrir túrista að skoða mörgæsirnar á Vatnajökli. Mjög atvinnuskapandi verkefni.
Annað mál sem við í ÖND-VEGIS-FLOKKNUM viljum setja á oddinn er að reisa lúxus Auðmannafangelsi. Útrásarvíkingarnir munu sjálfir byggja það og læsa sig svo inni á eftir.
Lýður Oddsson verður fangelsisstjóri.
Kjósendur góðir hÖÖÖÖfnum Sjálfgræðisflokknum.
.
.
Ö ER EKKERT BÖÖÖÖÖÖÖÖ!
Þarf að vinna litla sigra á hverjum degi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég frábið hernaðarsigra á degi hverjum. Ætla þeir ekki að eyra neinu? Eftir viku getum við stöðvað þá það verður enginn smásigur
Finnur Bárðarson, 18.4.2009 kl. 15:15
dásamlegt kæri herra formaður að sjá þín spöku orð....ÖÖÖÖ er ekkert BÖÖÖÖ..
Guðni Már Henningsson, 18.4.2009 kl. 16:46
Finnur... vonandi verður þetta sætasti sigur "ever"...
Félagi Guðni Már... líst þér ekki vel á nýja fangelsið okkar... okkur vantar nafn á það...
Brattur, 18.4.2009 kl. 16:59
Kusan hún er kýrog kusan segir möstúlkan hún er skýrog stúlkan hún kýs ö Davíð hann dýrog Dabbi hann er döstrákurinn er skýrog strákurinn kýs ö Njallinn okkar er nýrnjallinn er ekket böBrattur boy er hýr*Brattur hann kýs ö.
* hýr samanber glaður, hreifur, etc...
Guðni Már Henningsson, 18.4.2009 kl. 17:26
Betrúnarhús Bratts fyrir auðnuleysingja???
Guðni Már Henningsson, 18.4.2009 kl. 17:27
Betrunarhús.... átti það að vera...
Eða Náðhúsið notalega?????
Guðni Már Henningsson, 18.4.2009 kl. 17:28
Kusan hún er kýrog kusan segir möstúlkan hún er skýrog stúlkan hún kýs ö Davíð hann dýrog Dabbi hann er döstrákurinn er skýrog strákurinn kýs ö Njallinn okkar er nýrnjallinn er ekket böBrattur boy er hýr*Brattur hann kýs ö.
Guðni Már Henningsson, 18.4.2009 kl. 17:28
Hvernig stendur á þessu.... þetta kemur ekki rétt....
Guðni Már Henningsson, 18.4.2009 kl. 17:29
Reyni einusinni enn...
Kusan hún er kýr
og kusan segir mö
stúlkan hún er skýr
og stúlkan hún kýs ö
Davíð hann dýr
og Dabbi hann er dö
strákurinn er skýr
og strákurinn kýs ö
Njallinn okkar er nýr
njallinn er ekket bö
Brattur boy er hýr*
Brattur hann kýs ö.
Guðni Már Henningsson, 18.4.2009 kl. 17:32
* hýr samanber glaður, hreifur
Guðni Már Henningsson, 18.4.2009 kl. 17:32
hehe... nú er ég hýr (sbr. hreifur) en hvað þýðir annars hreifur?
Náðhúsið... er það ekki bara djöf... gott? það er fyrir Náð og miskun að lenda í þessu tugthúsið í stað þess að vera flengur opinberlega...
Brattur, 18.4.2009 kl. 17:46
Náðhúsið er gott, höfum það.
En hér er skýring á "hreifur" úr Esterarbók í gamla testamenntinu:
Vastí drottning hélt konum einnig veislu í höll Xerxesar konungs. 10Á sjöunda degi var konungur hreifur af víni og skipaði hann þá geldingunum sjö, sem þjónuðu honum, þeim Mehúman, Bista, Harbóna, Bigta og Abagta, Setar og Karkas, 11að leiða Vastí drottningu, prýdda kórónu sinni, fram fyrir konung svo að hann gæti sýnt gestum sínum og aðlinum yndisþokka hennar, enda var hún fögur sýnum. 12En Vastí drottning neitaði að verða við þeim tilmælum konungs sem geldingarnir báru henni. Konungur brást reiður við og sauð í honum bræðin.
Guðni Már Henningsson, 18.4.2009 kl. 17:53
Mehúman, Bista, Harbóna, Bigta og Abagta, Setar og Karkas, .... eru þetta núverandi eða tilvonandi ráðherrar??
Guðni Már Henningsson, 18.4.2009 kl. 17:54
bÖlvaður veri sjálfstæðisfokkurinn og megi hann skjóta sig í fÖkking lÖppina á hverjum degi.
X - Ö
kop, 18.4.2009 kl. 20:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.