Nú verður endurflutt...

... nú verður endurflutt leikritið Fulli mælirinn eftir H.G. Hannesson...

Einu sinni var mælir, hann var á gangi úti í sveit með nestið sitt. Hann var ungur og saklaus og ofboðslega hamingjusamur.

Hann var alls óhræddur þó hann væri að hugsa um Rauðhettu og ljóta úlfinn sem át ömmu hennar. Hann átti heiminn, ekkert gat gert honum mein.

Ungi mælirinn settist í græna lautu og horfði á allt góðgætið sem var í nestiskörfunni... mmm... hvað þetta var girnilegt... en hættur geta leynst víða þó það sé sólskin og blíða...

Kemur ekki allt í einu korn aðvífandi með fulla flösku af brennivíni og hellir vin okkar fullan.

Þetta var kornið sem fyllti mælinn.
.

 picknick

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Skyldi vera runnið af honum?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 9.2.2009 kl. 20:53

2 Smámynd: Brattur

Nei, það er sko ekki runnið af honum... mælirinn er enn fullur sem aldrei fyrr...

Brattur, 9.2.2009 kl. 21:46

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Þú átt engan þinn líkan.

Halldór Egill Guðnason, 10.2.2009 kl. 01:48

4 Smámynd: Ragnheiður

hehe var búin að gleyma hvað þessi er skemmtileg hehe

Ragnheiður , 10.2.2009 kl. 17:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband