Hætta liðin hjá!

... jæja, komið sunnudagskvöld... ljúf og notaleg helgi að klárast...

... ég ætla eiginlega bara að segja frá manni sem var svo sérvitur að hann hafði alltaf kveikt rautt ljós í
bílskúrnum hjá sér á veturna... af hverju... jú, hann átti rauðan bíl og var hræddur um að hann upplitaðist
í bílskúrnum ef hann hefði ekki þetta rauða ljós...
 

red_lantern_646 

.... þessi sami karl byggði efri hæð á einbýlishúsið sitt án þess að fá til þess tilskilin leyfi...hann spurði eftirlitsmenn frá bænum þegar þeir komu og gerðu athugasemd við þessa viðbótar byggingu;... hvað eigið þið eiginlega langt upp?

...
þegar komið var að húsinu hans, þá var þar súla með þremur kúlum á stærð við fótbolta... ein var blá, önnur gul og þriðja rauð... þetta þýddi "Hætta!" að sögn karlsins...

... þegar komið var framhjá húsinu var önnur súla og og bara 2 kúlur... svartar...

.

snooker_black_ballsnooker_black_ball

... þetta merki þýddi "Hætta liðin hjá!"  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þetta hefur verið hinn frumlegasti kall og sennilega ekki bundið bagga sína sömu hnútum og við miðjumoðsfólkið....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 20.1.2008 kl. 23:21

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Held að þetta hafi verið snillingur, ætla að fá mér rauða peru í svefnherbergið mitt.

Er ekki liturinn á ást annars rauður.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 21.1.2008 kl. 08:44

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég var einu sinnu spurð að því, afhverju Íslendingar litu svona vel út, hvort það gæti verið „svovel“ kíslillinn í vatninu. Nei svarað ég á penni norsku, Vi oppbevares mörkt og kjölig.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 21.1.2008 kl. 10:41

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

oppbevares mörkt og kjölig =

Gunnar Helgi Eysteinsson, 21.1.2008 kl. 15:14

5 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Geymist á dimmum og köldum stað

Ingibjörg Friðriksdóttir, 21.1.2008 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband