Hætta liðin hjá!
20.1.2008 | 22:39
... jæja, komið sunnudagskvöld... ljúf og notaleg helgi að klárast...
... ég ætla eiginlega bara að segja frá manni sem var svo sérvitur að hann hafði alltaf kveikt rautt ljós í
bílskúrnum hjá sér á veturna... af hverju... jú, hann átti rauðan bíl og var hræddur um að hann upplitaðist
í bílskúrnum ef hann hefði ekki þetta rauða ljós...
.... þessi sami karl byggði efri hæð á einbýlishúsið sitt án þess að fá til þess tilskilin leyfi...hann spurði eftirlitsmenn frá bænum þegar þeir komu og gerðu athugasemd við þessa viðbótar byggingu;... hvað eigið þið eiginlega langt upp?
...þegar komið var að húsinu hans, þá var þar súla með þremur kúlum á stærð við fótbolta... ein var blá, önnur gul og þriðja rauð... þetta þýddi "Hætta!" að sögn karlsins...
... þegar komið var framhjá húsinu var önnur súla og og bara 2 kúlur... svartar...
.
.... þetta merki þýddi "Hætta liðin hjá!"
Athugasemdir
Þetta hefur verið hinn frumlegasti kall og sennilega ekki bundið bagga sína sömu hnútum og við miðjumoðsfólkið....
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 20.1.2008 kl. 23:21
Held að þetta hafi verið snillingur, ætla að fá mér rauða peru í svefnherbergið mitt.
Er ekki liturinn á ást annars rauður.
Þorsteinn Valur Baldvinsson, 21.1.2008 kl. 08:44
Ég var einu sinnu spurð að því, afhverju Íslendingar litu svona vel út, hvort það gæti verið „svovel“ kíslillinn í vatninu. Nei svarað ég á penni norsku, Vi oppbevares mörkt og kjölig.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 21.1.2008 kl. 10:41
oppbevares mörkt og kjölig =
Gunnar Helgi Eysteinsson, 21.1.2008 kl. 15:14
Geymist á dimmum og köldum stað
Ingibjörg Friðriksdóttir, 21.1.2008 kl. 21:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.