Teljarinn

... einu sinni var maður sem var alltaf að telja alla skapaða hluti... hann fór í afmæli, brúðkaup og jarðarfarir og slíkt... og var alltaf að telja hve margir voru viðstaddir...

... það var ógerningur fyrir nokkurn mann að spjalla við hann í margmenni, hann var alltaf gónandi í allar áttir og taldi fólk... hvað segirðu gamli; sagði einhver við hann.... bíddu aðeins... svaraði Teljarinn og svo starði hann í allar áttir benti á fólk og lagði saman í huganum...

.

 numbers

.

... þegar hann ók bílnum var hann alltaf að telja hvað hann mætti mörgum bílum, hvernig þeir voru á litinn og hvaða tegund... þegar hann fór út á land, þá taldi hann ekki bara bílana sem hann mætti, heldur líka alla girðingastaura, hesta, kýr og kindur... 

... einu sinni kom hann að stað þar sem búið var leggja nýjan veg og girðingar allt í kring og líka endurskinsstikur... og búið var að girða gamla þjóðveginn af líka... það var sem sagt allt morandi í girðingastaurum og stikum, eiginlega miklu meira en Teljarinn réð við...

.

 HPIM0042

.

... í hasarnum við að reyna að telja þetta allt saman, ók hann yfir á öfugan vegahelming, heyrði aldrei flautið í flutningabílnum...

... dagar hans voru taldir...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hver taldi þá dagana ?   (þessi kall er að klóra sér í hausnum).

Anna Einarsdóttir, 11.1.2008 kl. 20:31

2 Smámynd: Brattur

já, Anna... nú er hér óvænt komin getraun í gang.... Hver taldi eiginlega dagana?

... svar síðar... veg - legur vinningur fyrir besta svarið...

Brattur, 11.1.2008 kl. 20:53

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Það er 205 orð í þessari færslu...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 11.1.2008 kl. 21:03

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

........og þrjár athugasemdir komnar. Reyndar fjórar með minni.

Halldór Egill Guðnason, 12.1.2008 kl. 04:09

5 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

... og 1.164 slög með stafabilum

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 12.1.2008 kl. 10:19

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Orðið "HANN" kemur 13 sinnum fyrir í pistlinum.... tel ég.   

Anna Einarsdóttir, 12.1.2008 kl. 13:00

7 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Hver er hann?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 12.1.2008 kl. 13:12

8 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ansi falla margir á léttu prófi.

Árni Gunnarsson, 13.1.2008 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband