Krummi er dáinn

... þið hélduð kannski að sagan um Krumma væri búin?... það hélt ég reyndar líka, en nei, ekki aldeilis... síðast þegar við fréttum, þá hafði Krummi útbúið sér lítið hreiður í snjónum fyrir utan matvörubúðina... ungi maðurinn sem hafði sópað honum út... færði honum kattamat svo hann hefði eitthvað að maula yfir nóttina...

... Hrafninn, sem nú hafði hlotið nafnið Whiskas... bjó sig undir erfiða nótt... hann sturtaði kattamatnum úr pokanum og skreið ofan í hann... fékk sér tvo þrjá bita í gogginn og hallaði aftur augunum...

... áður en varði var hann kominn í draumalandið... hann dreymdi það væri sumar og hann flaug um loftin blá með báða vængi heila... lét sig svífa í ljúfum vindinum... o, hvað þetta var dásamlegt, frjáls eins og fuglinn... hann langaði ekkert í mat... bara sveif og sveif á sterkum vængjunum, bara eitthvað út í loftið... allir sem sáu til hans vissu að hann var hamingjusamasti Hrafninn í bænum...

.

 Fljugandi-hrafn

.

... í morgun þegar ungi maðurinn kom í vinnuna, var það hans fyrsta verk að gá að Krumma... þarna lá hann í pokanum... var enn á lífi... greinilega máttfarinn, en samt með einhvern sælusvip... hann lá þarna fram eftir degi og vissi að daga hans væru taldir... hugsaði hlýlega til unga mannsins sem hafði sópað honum út úr búðinni... hann hafði þó gefi honum mat fyrir nóttina... menn voru þá ekki allir slæmir... hann var sáttur við að deyja á þessum degi...

... núna  rétt í þessu komu menn frá "bænum" og skutu Hrafninn Whiskas...

.

mynd237

.

... þessi saga kennir okkur, ekki neitt...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samúðarkveðjur, Brattur minn.

Mennirnir frá bænum, ættu að minnast þeirra Hugins og Munins. Hafi þeir fargað Krumma, í líknarskyni, er góðverk, að öðru illska. Vona, að líknsemin hafi verið þarna, í fyrirrúmi.

Þakka ykkur, unga manninum, gæzku ykkar, gagnvart þessum vængjaða vini mannsins.

                                         Óskar Helgi Helgason  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 18:24

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Einu sinni skaut ég ekki fugl og hann dó...

es. Ég skildi þessa sögu

Gunnar Helgi Eysteinsson, 9.1.2008 kl. 18:28

3 Smámynd: Gunnar Níelsson

Ekki góðar fréttir, Whiskas vinur vor allur. 

Gunnar Níelsson, 9.1.2008 kl. 18:35

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ljúfsár saga.  Góður þessi ungi maður. 

Þegar ég var unglingur, varð ég vitni að því að maður einn skaut Hrafn, einungis sér til skemmtunar.  Ég varð alveg rosalega reið og tók manninn í bakaríið og buff og hakk.... þrátt fyrir að hann væri yfirmaður minn á þeim tíma.  Urrrrrr, hvað ég varð reið maður.   

Anna Einarsdóttir, 9.1.2008 kl. 21:47

5 Smámynd: Brattur

... Gunnar Helgi, loksins kom að því að þú skildir mig... meira en ég get sagt...

... Anna... gott hjá þér, það á ekki að skjóta dýr sér til skemmtunar... buff og hakk... úpps... sé yfirmanninn alveg fyrir mér eftir þá meðferð...

Brattur, 9.1.2008 kl. 23:02

6 Smámynd: Ragnheiður

Smá buffaður og helling hakkaður...auðvitað á ekki að skjóta dýr sér til gamans. Það gera bara morrar.

Ragnheiður , 10.1.2008 kl. 00:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband