Hrafninn

... einu sinni var Hrafn... hann hafði lent í því að sofna þegar hann stóð upp á ljósastaur og féll til jarðar... hann vængbrotnaði við fallið... vængbrotinn Hrafn á erfitt með að ná sér í matarbita... það vildi samt svo heppilega til, fyrir Hrafninn, að atvik þetta átti sér stað rétt hjá matvörubúð...

... Krummi greyið fann til í brotinu, en reyndi að koma sér úr birtunni frá ljósastaurnum og bak við búðina, þar sem ruslagámurinn var... þar væri hann í betra skjóli fyrir mannfólkinu og öðrum þeim sem hugsanlega vildu gera honum mein... þar var einnig meiri von á matarögn, því eitt af því besta sem Krummum finnst að borða er rusl...

.

hrafn

.

... en í kringum ruslagáminn var allt snyrtilegt og ekki matarörðu að finna... Krummi var orðinn verulega svangur þegar lagerhurðin var opnuð... ungur maður gekk út og kveikti sér í sígarettu... reykurinn frá henni liðaðist upp í loftið og ungi maðurinn horfði upp í kvöldhimininn á stjörnurnar... hann var hugsi... allir verða hugsi af og til... það kannast flestir við... gleyma sér í eigin hugarheimi...

... það var enn ein heppni Hrafnsins vængbrotna, í óheppninni... hann notaði tækifærið og smeygði sér inn um lagerdyrnar... váááááá... hér var nægur matur... Krumma leist best á poka með Whiskas kattamat í... reif einn í sundur og smakkaði... já, ekki slæmt "Salmon" stóð á pokanum... hann reif upp tvo poka til viðbótar... "Chicken" og "Tuna"... "Chicken" var langbestur og hann hámaði í sig kattamatinn...

.

 chicken01

.

 

... allt í einu féll skuggi á Hrafninn... ungi maðurinn var kominn inn og horfði á hann... og gapti... greip sóp og reyndi að sópa Krumma út... Hrafninn varðist fimlega til að byrja með, en að lokum var honum sópað út í kuldann og myrkrið,vængbrotinn greyið...

... þessi saga kennir okkur að best er að mála híbýli sín að vori til...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá, vel sagt frá og má við bæta að þessi saga er sönn og gerðist núna áðan . Þetta hefur verið góður kattamatur því hann bíður hérna úti ennþá, kannski ég láti hann fá aðeins meira...

Gísli Tryggvi (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 21:33

2 Smámynd: Brattur

... já mikið rétt GT... þessi saga er að gerast núna... akkurat núna... gefðu honum smá Whiskas í kvöld og leyfðu okkur að heyra hvort hann þrauki nóttina... á morgun verður því framhald á sögunni... allt í beinni... aaaaaaaauuuuuuuuuuðvita bara hjá BRATTI.... verið rétt stillt... stillið á Brattinn... og fylgist með sögunni um vængbrotna Krumman...

Brattur, 8.1.2008 kl. 21:51

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég er stillt. 

Anna Einarsdóttir, 8.1.2008 kl. 21:54

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Góð saga en ég skil ekki baun

Gunnar Helgi Eysteinsson, 8.1.2008 kl. 21:57

5 Smámynd: Júdas

Ég er ekki frá því að ég verði að gera mér ferð á draumalendur til að skilja þetta, en krummi karlinn hefur verið svolítið von-svikinn reikna ég með.

Júdas, 8.1.2008 kl. 23:57

6 identicon

jæja hrafninn hann whiskas bjó sér til lítið hreiður til að þrauka nóttina af og ég skild eftir handa honum kattamatinn í nætursnarl.

Gísli Tryggvi (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 00:15

7 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Er alveg orðlaus, svona djúp speki vekur ávallt hjá mér lotningu.

Skrifaðu meira Brattur, endilega.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 9.1.2008 kl. 10:16

8 Smámynd: Gunnar Níelsson

Þetta er spennandi, verð að fylgjast með hvort þarna sé á ferð nýr kúnna/krumma hópur.

Þakka GT fyrir þessa nýju markaðssetningu

P.s  Spái að beef nuggets 1,5 kg muni slá í gegn og margir krummar muni freista þess að brjóta vængi til þess að fá ef boðið verður uppá !

Gunnar Níelsson, 9.1.2008 kl. 15:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband