Aðfangadagur
23.12.2007 | 22:09
... í október bloggaði ég um það, að það eina sem mig vantaði fyrir jólin væri pottur til að búa til uppstúf í fyrir jólin... nú á ég hann... og búinn að æfa mig á honum... hann reynist mjög vel og ef eitthvað klikkar með jafninginn þá get ég ekki kennt pottinum um frekar en fótboltamaðurinn skónum, ef hann brennir af í dauðafæri....
... en sem sagt, þarna í október... borðaði ég hangikjöt í góðum félagsskap í sumarbústað...
... ógleymanleg helgi reyndar... en hennar saga verður ekki rakin frekar...
... hef ekki borðað hangikjöt síðan og hlakka mikið til að borða það á jóladag... verið að sjóða það núna og ilmurinn er vægast sagt ljúfur... held að maður eigi ekki að troða sig út af hangikjöti á jólahlaðborðum og öðru slíku í desember... þá er hætt við að manni hlakki ekkert til að borða það þegar kemur að jólum...
... þetta ljóð um jól æsku minnar birti ég í október, en endurtek það hérna vegna þess að það munaði litlu að ég fengi áskorun um það....
.
.
Aðfangadagur.
Mikið var mjöllin mjúk
í firðinum forðum
alvöru jólasnjór
í stofunni var allt klárt
gervitréð bómullarkirkjan
allir pakkarnir
Prins Valiant
til: þín
frá: mér
Fimm á Fagurey
pakkar með slaufum
tryllingslegur ilmurinn
úr eldhúsinu
blindfullir kökudunkar
hálfmánar vanilluhringir
laufabrauð svindl -
og kornflekskökubirgðir
minni en mamma hélt
klukkan sex
heims um ból
helg eru jól
heilagt
tíu mínútum
síðar bein á hátíðarborðinu
etinn heimatilbúinn ís
smyglað Machintosh
drukkið jólaöl
framundir morgun
með bóklestrinum
ó, hver dýrðlegt var að sofna þá
Athugasemdir
Gleðileg jól Brattur til þín og þinna. Takk fyrir upplýsandi skrif, sögur um Laufu, Þorlák, og útlistun á jólaundirbúning.
Ljóðið Aðfangadagur gæti eins átt við líf drengs í Oddeyrargötu, og seinna Hafnarstræti. Mjög fallegt og nær að fanga stemmingu þessa magnaða gas mjög vel.
Gunnar Níelsson, 24.12.2007 kl. 17:38
Gleðileg jól
Bjarney Hallgrímsdóttir, 25.12.2007 kl. 12:21
Brattur/Gísli gleðileg jól og takk fyrir jólakveðjurnar!
Edda Agnarsdóttir, 25.12.2007 kl. 20:32
Gleðileg jólin Brattur, aftur. Góður pottur, Prins Valiant, smákökur og allur pakkinn toppaður með smellnu ljóði. Ef þetta eru ekki jólin....?
Halldór Egill Guðnason, 26.12.2007 kl. 23:59
Gleðilega jólarest og takk fyrir góða kveðju. Ég held að ég hafi sagt þér, þegar ég las þetta jólaljóð þitt í haust, að þarna væru bernskujólin mín bráðlifandi komin, lyktin, stemmningin, allt!! Frábært.
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 27.12.2007 kl. 23:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.