Ævintýri

... einu sinni var lítill kall sem bjó í pínulitlu rauðu húsi inni í skógi... við hliðina á húsinu hans var tjörn... litla kallinn langaði mikið í gullfiska í tjörnina sína... hann lagði því af stað með nokkrar kexkökur og ávaxtasafa í malnum sínum... hann gekk lengi lengi þar til hann kom að fallegri lind... hann spurði lindina; átt þú nokkuð fallega gullfiska til að gefa mér... en af því að hann vissi að lindir tala ekki hátt, þá lagðist hann á bakkann og setti litla eyrað sitt að vatninu... þá heyrði hann tæru lindina tala; nei, kæri vinur, ég á ekki gullfiska handa þér, farðu þarna upp í hlíðina og talaðu við lækinn sem rennur þar, stundum á hann fiska... litli kallinn þakkaði lindinni fyrir svarið og hélt trítlandi af stað til lækjarins...

... þetta var byrjunin á ævintýrinu "Litli karlinn, tjörnin hans og leitin að gullfiskunum"... kannski kemur framhald, kannski ekki... ég er kominn í smá, já bara smá, kannski viku... bloggfrí, verð á svo miklum þeytingi næstu dagana að ég kemst lítið í bloggið... ef ég kemst þá skoða ég ykkur kæru bloggvinir og hendi inn misgáfulegum athugasemdum...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Bíð spennt eftir framhaldinu sem vonandi kemur

Hafðu það sem best á þeytingnum.  

Marta B Helgadóttir, 11.9.2007 kl. 08:31

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Farðu varlega á þeytingnum Brattur og hafðu það sem allra best. Er sjálfur að detta út úr öllu sambandi við umheiminn( Ekki af völdum neins sjúkdóms þó)

Halldór Egill Guðnason, 11.9.2007 kl. 09:11

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það er ekki hægt að enda inni í miðri sögu Brattur..... alltaf að klára.  Annars vitum við aldrei hvernig hún endar. 

Mér finnst algjört lágmark að ná eins og tveimur ýsum í tjörnina, ef gullfiskarnir finnast ekki. 

Anna Einarsdóttir, 11.9.2007 kl. 09:44

4 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

La la la la la ævintýri enn gerast!  Gangi þér vel á "þeytingnum".

Vilborg Traustadóttir, 11.9.2007 kl. 12:14

5 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Anna er svo bráðlynd, að hún á erfitt með framhaldssögur. Hún vill þær stuttar og snarpar og skrifaðar í hinum mesta flýti, en Anna, asi gerir engan flýti og góðir hlutir gerast hægt. Skil aldrei afhverju „Hægt og hljótt„ varð í 16. sæti. Búðu þig undir það að gullfiskarnir finnist ekki fyrr en í 3. bindi.

Brattur, ég eins og fleiri mun sakna þín og tárin munu hrynja sem foss.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 11.9.2007 kl. 17:29

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ekki fyrr en í þriðja bindi ?  Þá sleppi ég öðrum kafla.   

Anna Einarsdóttir, 11.9.2007 kl. 17:56

7 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Það er nú allt í lagi Anna mín, því ég held að kaflinn sé svo stuttur en blaðsíðurnar í öðru bindi eru 279, ehaggi Brattur?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 11.9.2007 kl. 19:30

8 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Það búa litir dvergar í fjallasal ... Bibbidi babbidi bú og vertu búin fyrir klukkan þrjú.

Edda Agnarsdóttir, 11.9.2007 kl. 20:01

9 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Hvert ferðu Halldór? ... úr sambandi við umheiminn ... hvert getur maður farið til þess plíís   

Marta B Helgadóttir, 12.9.2007 kl. 20:05

10 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

 Marta...ég veit ekki með Halldór en ég flutti til Djúpuvíkur....

Vilborg Traustadóttir, 12.9.2007 kl. 21:34

11 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég er í hópi þeirra sem bíða eftir framhaldinu. Ég veit að "punch-line"-ið verður afar spakt.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.9.2007 kl. 22:55

12 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Góð Vilborg

Marta B Helgadóttir, 12.9.2007 kl. 23:20

13 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Marta mín.:Fór  bara með tölvuna í viðgerð og var sambandslaus á meðan. Hélstu að ég hefði uppgötvað paradís einhversstaðar?  Vildi að svo væri. "Smjúts"

Halldór Egill Guðnason, 13.9.2007 kl. 14:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband