Fiskisúpa með pastaskrúfum

... það er ekki nóg að veiða og setja fiskinn í frystinn... heldur er það beinlínis skylda sérhvers veiðimanns að borða það sem hann veiðir... og nú er ég að tala um sportveiðimenn...

... ég er svo heppinn að finnast silungur góður og borða ýmist ofnbakaðan, eða þá í fiskisúpu... nú tók ég einn urriða út úr frystiskápnum í morgun og hann er á leiðinni í súpu í kvöld... ég ætla að koma með þessa uppskrift hérna, en hún er mjög einföld (hentar mér sérstaklega vel að hafa hlutina einfalda)... og fljótgerð..

... síðan þegar sest er að borðum þá grobba ég mig ekki ósjaldan og segi eitthvað svona; ja, þessi var nú veiddur á Peacock nr. 10 við Varastaðahólmann... og er svona frekar góður með mig...

En hér kemur uppskriftin:

Blaðlaukur - gulrætur - steinselja - hvítlaukur - karrý - paprikuduft - súputeningar - hvítvín (mysa gengur alveg) - rjómi - pastaskrúfur - silungur (eða lax)

Aðferð:

Blaðlaukur, gulrætur, steinselja og hvítlaukur er látið krauma í potti.  Karrý og paprikudufti er bætt útí ásamt fjórum súputeningum. 25cl af hvítvíni (mysu) er bætt útí ásamt 75 cl. af rjóma. 1bolli af soðnum pastaskrúfum er settur útí og suðan látin koma upp. Látið sjóða í 4. mín. Fiskurinn er skorinn í teninga eða sneiðar og settur útí í blálokin... soðið í 1 til 2 mín. eftir að fiskurinn fer útí. Miðað er við 80gr. af fiski á mann. Gott að bera fram nýbakað brauð með súpunni. Venjulegur skammtur af súpu er fjórir á hvern lítra.

Þetta er uppskriftin, en uppskriftir eru bara til að styðja sig við, ég spila þetta bara af fingrum fram og set smá skammt af tilfinningum útí... hef t.d. meira af pastaskrúfum en uppskriftin segir og þær mega ekki vera fullsoðnar þegar þær fara útí súpuna...

... mæli með þessu, fljótlegt og gott... þ.e.a.s. ef fólk á annað borð kann að meta fiskisúpur...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Búinn að "copera" og ætla að reyna þessa uppskrift. Takk fyrir þetta Brattur.

Halldór Egill Guðnason, 5.9.2007 kl. 14:49

2 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Sama hér....

Vilborg Traustadóttir, 5.9.2007 kl. 15:53

3 Smámynd: Hugarfluga

Ok, nú er ég formlega svöng, þeink jú verrí næs. Nammi namm!! Þessi fer í uppskriftabunkann í minnisflögunni minni.

Hugarfluga, 5.9.2007 kl. 15:54

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Brattur.....skúrar og eldar fiskisúpu sama daginn !  Þú ert svakalega myndarlegur maður.

Anna Einarsdóttir, 5.9.2007 kl. 16:00

5 Smámynd: Brattur

... Anna... ég er ábyggilega OFUR eitthvað , veit ekki bara alveg hvað... jú, nú kemur það OFUR-venjulegur...

Brattur, 5.9.2007 kl. 17:25

6 Smámynd: Brattur

... Hugarfluga, að vera formlega svöng, er ábyggilega eitthvað rosalegt... þá formar maður ekki lengur að lesa bara um mat, heldur þarf maður að skella einhverju í sig ekki sinna en í hvelli... sem sagt neyðarástand, ekki rétt?

Brattur, 5.9.2007 kl. 17:28

7 Smámynd: Hugarfluga

Þarna hittirðu naglann á höfuðið, Brattur beibí. Formleg svengd er nebblega akkúrat það, að maður er svo svangur að maður tyggur tissjú frekar en ekki neitt. Og hananú og bittenú og hopp og hí og trallala.

Hugarfluga, 5.9.2007 kl. 18:13

8 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Segi sama og Vilborg ....

Marta B Helgadóttir, 5.9.2007 kl. 18:45

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Marta segir sama og Vilborg og Vilborg segir sama hér........ þetta er orðið dulítið flókið mál.

Anna Einarsdóttir, 5.9.2007 kl. 19:30

10 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Marta segir sama og Vilborg,

Vilborg segir sama hér.

Brattur fékk sér bíl í Brimborg,

alveg sama er mér

Halldór Egill Guðnason, 5.9.2007 kl. 21:53

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Marta segir sama og Vilborg

Vilborg segir sama hér.

Halldór rak upp gól og org

og bílinn keypti sér.

Anna Einarsdóttir, 5.9.2007 kl. 22:00

12 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Marta segir sama og Vilborg,

Vilborg segir sama hér.

Anna vísu ber á öll torg,

miklu betri en hjá mér.

Halldór Egill Guðnason, 5.9.2007 kl. 22:10

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Marta segir sama og Vilborg

Vilborg segir sama hér.

Brattur súpu ber á torg

en bauð samt ekki mér.

Anna Einarsdóttir, 5.9.2007 kl. 22:19

14 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Engin kexmylsna með súpunniBrattur

Ingibjörg Friðriksdóttir, 5.9.2007 kl. 22:43

15 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Á maganum er mestur þunginn

of mikið borðar, gaman gaman... 

Bratturinn er sjálfsagt sprunginn

og sauma þarf hann saman.

Anna Einarsdóttir, 5.9.2007 kl. 22:49

16 Smámynd: Brattur

Um bumbuna Brattur nú strýkur

nær búið er allt af diski

saddur og sæll hann líkur

súpu úr handveiddum fiski

Brattur, 5.9.2007 kl. 23:03

17 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Var súpan úr urriða væni

Uppskriftin einföld og góð ?

Kannski ég krásunum ræni

og kuðli þeim saman í ljóð.

Anna Einarsdóttir, 5.9.2007 kl. 23:13

18 Smámynd: Brattur

Anna, 

 Ef súpu þú syðir handa mér

sem væri eins og ljóð

hún líklega líktist sjálfri þér

ljúffeng, hugprúð og góð

Brattur, 5.9.2007 kl. 23:29

19 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Æ Brattur minn þú ert svo sætur

að súpan bliknar við hliðin´á þér

Nú óska ég ykkur góðrar nætur

ég ætla að fara að halla mér. 

Anna Einarsdóttir, 5.9.2007 kl. 23:38

20 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Er ég ekki sofnuð ennþá ? 

Anna Einarsdóttir, 5.9.2007 kl. 23:50

21 Smámynd: Brattur

nei, Anna... finnur þú ekki rúmmið... eða kannski ertu sofnuð???

Brattur, 5.9.2007 kl. 23:52

22 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Örugglega góð súpa, ég þarf að prufa að elda hana.... er samt ekki viss með pasta skrúfurnar...en má láta á það reyna. Fiskisúpa er nú alltaf freistandi.

Gott að vita að þú getur eldað Brattur, ef við höfum súpu á Ketilásnum um miðnættið á Hippa ballinu eða verðum við kannski að hafa sviðakjamma í heilu lagi uppá stemminguna Magga

Hulda Margrét Traustadóttir, 6.9.2007 kl. 08:13

23 Smámynd: Heiða  Þórðar

Ekki spurning ég prófa minn elskulegur

Heiða Þórðar, 6.9.2007 kl. 09:52

24 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Hér er allt að fara úr böndunum!!!!!...Talandi skáld í hverju horni........flott þetta og Magga tek undir þetta með súpuna á Ketilásnum...gætum "dregið fyrir" í Brúnastaðaánni og fengið slatta í súpu.........gæti orðið erfiðara að "veiða rollur" og svíða á staðnum!!!!  Hvernig er það annars Brattur er húsið klárt???

Vilborg Traustadóttir, 6.9.2007 kl. 10:13

25 Smámynd: Brattur

Vilborg og Magga, skildi þetta góða símanúmer á Ketilásnum eftir í vinnunni þegar ég fór í frí, kemst einhvernveginn ekki aftur í vinnuna að ná í númerið... en nú er fríið á enda runnið og ég verð mættur þar á mánudaginn... sjáum hvað gerist þá... en það er ákveðin rómantík að borða sviðahausa upp við heybaggarúllu... verð að segja það...

Brattur, 6.9.2007 kl. 11:12

26 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Já og í þá daga gengu piltar með vasahníf í vasa fyrir sviðakjammana...(væri ekki sama í dag ef allir væru með vasahnífa omg) mér finnst bara svo lítið rómantískt við rúllurnar, verð að segja það, svona fyrir minn smekk. En ætli við verðum ekki að láta þær duga nema fólk mæti í heyskap á Ásinn og reddi þessu með sáturnar  Magga

Hulda Margrét Traustadóttir, 6.9.2007 kl. 16:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband