Vakna snemma!
13.8.2008 | 20:14
... við eigum að leika við Dani á laugardaginn... ef að satt reynist að margir leikmenn þeirra séu meiddir, þá eigum við góða möguleika... það er svo svakalega gaman að vinna Dani í handbolta... og alltaf erum við að hefna fyrir fótboltaleikinn 14:2 sem ég fjallaði um hér á síðunni í síðustu færslu...
held að leikurinn í fyrramálið við S-Kóreu verði strembinn... en ætli við tökum þetta samt ekki með 5 mörkum eða svo...
... ég er ákveðin í því að vakna í fyrramálið, hita mitt morgunte og æpa mig hásan... og gera bara svo eins og Lýður í Lottóinu... leggja mig svo aftur... vonandi með bros á vör... í náttfötunum...
.
.
![]() |
Meiðsli í herbúðum danska landsliðsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14:2
13.8.2008 | 13:55
... þessa tölu þekkja margir íþróttaunnendur og ekki af góðu...
Ísland tapaði fyrir Dönum í fótbolta á Idrætsparken í Kaupmannahöfn, 23. ágúst 1968 ef ég man rétt... nú eru 40 ár liðin frá þessum merka atburði...
Árið 1968 átti ég svona forláta segulbandsdæki og tók upp lög úr útvarpi og íþróttaviðburði... ég á enn einhverstaðar í fórum mínum upptöku af þessum leik...
Sigurður Sigurðsson íþróttafréttamaður lýsti síðari hálfleik, en það var algengt á þessum árum að lýsa bara seinni hálfleik í útvarpi.
Ég man eina og eina ódauðlega setningu úr lýsingunni... s.s.
"Komið þið sæl, það er ekki gaman að vera Íslendingur á Idrætsparken í dag, staðan í hálfleik er 6-0"
Síðan hélt markaregnið áfram. Danir komust í 8-0 en þá gerðist svolítið óvænt!
.
.
Sigurður Sigurðsson hefur orðið;
"Og... og... Hermann Gunnarsson skorar, það átti engin von á þessu, síst af öllu danski markvörðurinn"
Og litlu síðar skorar Helgi Númason... "og sannar þar með tilverurétt sinn í íslenska landsliðinu"... eins og Sigurður sagði í snjallri lýsingu sinni.
Í sjálfu sér var fínt að skora 2 mörk á útivelli á móti Dönum... en miklar væntingar voru á Íslandi fyrir leikinn um góð úrslit... en að fá á sig 14 mörk... var nokkuð sem enginn reiknaði með, í fótbolta.
Þetta var afmælisleikur hjá Dönum. Blöðrum sleppt upp í loftið sem táknuðu sigra, jafntefli og töp Dana í gegnum tíðina. Mikið húllumhæ á leiknum... en ábyggilega ekki gaman að vera Íslendingur á Idrætsparken 23. ágúst 1968.
.
.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)