Vidic þyrsti

Nú eru kettlingarnir orðnir þriggja vikna. Í dag var hús þeirra stækkað úr einu herbergi í tvö.
Engin kreppa á hjá þessum útrásarvíkingum.

Þeir ferðast nú um jarðgöngin Kattegat til þess að skoða þennan nýja heim og verða ofboðslega hissa þegar þeir sjá alveg eins herbergi hinum megin.

Persónueinkennin eru að koma í ljós. Ronaldo er greinilega fljótastur að ferðast um... Alexsandra er pen og kurteis og vælir ekki eins mikið og strákarnir. Tevez er með Suður Amerísk einkenni... svolítill Indíáni í sér... og svo er það hann Vidic... hann sker sig úr hvað lit varðar... er sá eini sem er grár... hann er pínulítið útundan og seinni til en hinir... hann opnaði t.d. augun seinastur allra... en honum finnst sopinn góður... drekkur þar til hann lognast út af...

Ég heiti Vidic og er mjög oft þyrstur
Ég er alltaf seinn og aldrei fyrstur
Hjá mömmu ég drekk, hún kúrir sig
Svo líður oft snögglega yfir mig
.

 Vidic sefur

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Hahaha myndin er snilld með vísunni...alveg handónýtur kettlingur hehe

Ragnheiður , 12.5.2009 kl. 00:15

2 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Svo sendið þið Tevez auðvitað til mín um leið og skiptin fara fram

Ingibjörg Friðriksdóttir, 12.5.2009 kl. 11:23

3 Smámynd: Finnur Bárðarson

Aumingja kallinn :)

Finnur Bárðarson, 12.5.2009 kl. 17:42

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hann er algjört krútt

Hrönn Sigurðardóttir, 13.5.2009 kl. 09:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband