Ég gef kost á mér
27.3.2009 | 19:52
Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í framboð fyrir nýjan flokk sem heitir "Brattsýnisflokkurinn". Hef ég sótt um og fengið úthlutað listabókstafnum Ö.
Bloggvinur minn hann Guðni Már hvetur mig til framboðs og undan því verður ekki hlaupið.
Ég hef hugsað mér að vera ekki deild í áttflokkunum (var áður fjórflokkar en hefur fjölgað) heldur vera flokkur, svokallaður "One man bandító"
Eftirfarandi mál set ég á oddinn:
Mál nr. 1)
Ég vil flytja inn mörgæsir og sleppa þeim á Vatnajökul.
Þær myndu draga að aragrúa erlendra fuglaskoðara sem myndu kaupa af okkur mörgæsafóður í tonnavís.
Mörgæsafóðurblöndunarstöð verði byggð á Bolungarvík til að sinna markaðnum.
Með því móti myndum við þurfa að stofna nýtt flutningsfyrirtæki og leggja hálendisveg eða jarðgöng frá Bolungarvík að Vatnajökli. Mikil atvinnusköpun fylgir þessu eins og gefur að skilja.
Þá gætum við lagt af öll áform um olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. Mörgæsafóðurblöndunarstöðin verði fótstigin og mjög umhverfisvæn.
Fleira hefur mér nú ekki dottið í hug sem getur komið okkur til bjargar á þessum erfiðu tímum.
Guð blessi Ísland.
Munið Ööööööööö flokkinn........... fullur...... Brattsýni.
.
.
Þyrfti kannski að biðja ykkur lesendur að hjálpa mér að finna slagorð...
Íslandshreyfingin hluti Samfylkingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hugsa að þú fáir fleiri atkvæði en framboð Ástþórs a.m.k.!
Þór Jóhannesson, 27.3.2009 kl. 20:14
Mér lýst vel á þetta með möööööörgæsirnar. Passaðu bara að þú veljir ekki þessa tegund, ananas er voðinn vís....a.
Svanur Gísli Þorkelsson, 27.3.2009 kl. 20:40
Ég er stoltur..... og finn fyrir viðkvæmni. Ég held að þú þurfir ekki fleiri baráttumál. Þetta eina er svo yfirgripsmikið að það hálfa væri hellingur. Og munið slagorðið; Brattur er gvÖÖÖð....
Guðni Már Henningsson, 27.3.2009 kl. 21:04
Hmm, "Magnaðar ~möggur~ á Miklajökul"...
?
Steingrímur Helgason, 27.3.2009 kl. 21:16
Takk fyrir hvatninguna félagar... ég er í tárum... bíðið aðeins meðan ég næ í snýtupappír...
OK kominn aftur... Guðni frábært slagorð...
BRATTUR ER gvÖÖÖð
En nú þarf ég að drífa mig á landsfundinn... fram í þvottahús... og ég sem var ekki búinn að semja ræðuna... jæja, ég biðst bara fyrirgefningar á að vera til...
Brattur, 27.3.2009 kl. 21:33
Þú ert brattur, Brattur.
já (IP-tala skráð) 28.3.2009 kl. 04:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.