Hérinn og gćsin
31.1.2009 | 10:21
Einhvernvegin minnir ţessi Framsóknarfarsi mig á gamla sögu;
Einu sinni var bóndi sem átti héra og gćs... hérinn var slóttugur og vissi ađ bóndinn myndi annađ hvort éta hann eđa gćsina um jólin...
Hérinn gerđi samkomulag viđ bóndann... hann lofađi ađ hjálpa honum ađ setja niđur gulrćtur og vera duglegur ađ smala fénu međ honum... hérinn ćfđi sig dag og nótt ađ gelta eins og hundur til ađ geta sinnt hlutverki sínu í smalamennskunni... hann náđi ţví svona nćstum ţví, en var samt alltaf hálf skrćkur, eins og hundur međ hálsbólgu...
Gćsin var hinsvegar himinglöđ á hverjum degi og vappađi um bćjarhlađiđ og söng af hjartans lyst... Stundum settist bóndinn hjá henni og ţau tóku lagiđ saman...
.
.
Svo leiđ sumariđ og vetur gekk í garđ... hérinn snérist eins og skopparakringla í kringum bóndann og reyndi ađ ţóknast honum í öllu... sleikti gleraugun hans og ţreif, setti nýja klósettrúllu á haldarann ţegar sú gamla var búin og kveikti á hádegisfréttunum svo dćmi séu tekin...
Í desemberbyrjun fór bóndinn ađ raula jólalög... Ó, Helga nótt söng hann međal annars... gćsinni ţótti ţađ lag undurfagurt og lćrđi ţađ strax og gat tekiđ undir... ţetta er nú meiri gćsin sem ég á, hugsađi bóndinn, syngur svo fallega og fćrir mér birtu og yl í sálartetriđ...
Hérinn varđ hálfsmeykur ţegar hann sá hvađ bóndinn var heillađur af gćsinni... hann reyndi ađ syngja líka, en ţvílík hörmung, skrćkur og falskur var hann svo bóndann verkjađi í eyrun og fékk hausverk...
Á Ađfangadag settist bóndinn viđ borđ sitt, í matinn var svikinn héri...
Á eftir settist hann inn í stofu og gćsin međ honum... ţau sungu Ó, helga nótt...
Ţađ hljómađi fegurra en nokkru sinni áđur.
.
.
Ósćtti um ađgerđirnar | |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.