Nú er ég kátur!

Mikið rosalega finnst mér þetta fínt... nú þegar mótmælin eru að koma ríkisstjórninni frá, þá eigum við að snúa okkur að þeim sem bera ekki síst ábyrgð á bankahruninu og þeirri stöðu sem almenningur og landið er komið í ... við eigum að þjóðnýta eignir fjárglæframannanna og peninga til að lækka þær skuldir sem þessir sömu menn, útrásarvíkingarnir, hafa sett á okkur, fólkið í landinu... við erum nú að fara að borga þær ógnarskuldir skuldir sem útrásarvíkingarnir hafa sett okkur í... Er ekki allt í lagi að þeir borgi þær skuldir með okkur?

... að hætta að versla í Bónus og verslunum  Baugs er líka stórfín aðferð til að koma höggi á þessa menn...


mbl.is Mótmælt við höfuðstöðvar Baugs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Við Samkaupum þetta, KEA menn.

Steingrímur Helgason, 25.1.2009 kl. 18:48

2 Smámynd: Brattur

Steingrímur er ekki bara kominn tími til að endurreisa KEA sem verslunarfyrirtæki? KEA er framtíðin!

Brattur, 25.1.2009 kl. 19:26

3 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

Þeir eiga að borga sínar skuldir, sem þeir tóku út um allt, ekki við.

Marta Gunnarsdóttir, 25.1.2009 kl. 21:32

4 Smámynd: Gunnar Níelsson

Brattur gögnum í málið,  KEA búðir yðar búðir !  Var ekki svona sem auglýst var í denn ?

Gunnar Níelsson, 25.1.2009 kl. 21:46

5 Smámynd: Brattur

Jú, einmitt Gunnar... gamalt og sakleysislegt slagorð á vel við í dag...

Brattur, 25.1.2009 kl. 21:51

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Skjóta má einn SkuggaBaldur, er sögnin hér norðlendiz...

Steingrímur Helgason, 25.1.2009 kl. 23:21

7 identicon

Loksins,loksins er farið að mótmæla á réttum stöðum.Mótmælendur fá prik frá mér núna!!

Gummi (IP-tala skráð) 25.1.2009 kl. 23:30

8 Smámynd: Brattur

Gummi... um að gera að taka eitt skref í einu í þessu, nú er ríkisstjórnin að hrökklast frá og þá er komið að auðmönnunum, er það ekki?

Brattur, 25.1.2009 kl. 23:41

9 Smámynd: Ragnheiður

Það þarf að taka þetta skipulega fyrir svo mótmælin þynnist ekki út..líst vel á aðgerðir kvöldsins..við baug group og seðlabankann..

Ef Davíð fer ekki núna þá er alveg ljóst að hann hefur eitthvað stórvægilegt á þessa menn sem sífellt hlífa honum !

Ragnheiður , 26.1.2009 kl. 03:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband