Angantýr
11.1.2009 | 11:47
... einu sinni var mađur sem hét Angantýr. Hann safnađi olíulömpum...
Angantýr var stórvaxinn og frekar grófur í andliti. Hann var eins og klettur í framan, ef ţiđ skiljiđ mig.
Hann var ţví sem mćtti kalla stórfríđur.
Angantýr var aldrei kallađur Angantýr litli ţegar hann var lítil, ţví hann var eiginlega aldrei lítill.
Angantýr hafđi mjög gaman af ţví ađ bjóđa til sín fólki í mat. Hann bjó annars einn og hafđi aldrei veriđ viđ kvenmann kenndur, en var samt oft kenndur.
Hann bauđ venjulega Magnúsi skósala, Mundu í Bakkagerđi, Harry heilbrigđa, Sćmundi bćjarritara og Steinhelgu í sjoppunni. Ţetta var kjarninn af ţví fólki sem komu í veislurnar hans Angantýs. Stundum kom ţó fyrir ađ Bjössi brjálađi og Baldur krati komu líka. En ţađ var eingöngu ţegar Munda í Bakkagerđi komst ekki. Munda ţoldi ekki Bjössa brjálađa og Baldur krata af ţví hún var vinstri grćn. Bjössi brjálađi var hinsvegar Sjálfsstćđismađur og Baldur krati Framsóknarmađur.
.
.
Í veislunum bauđ Angantýr upp á brauđsneiđar. Hann smurđi ţćr međ majonesi og stappađi sardínur ofan á, ýmist sardínur í olíu eđa sardínur í tómat.
Brauđsneiđarnar skreytti hann međ steinlausum sveskjum sem hann skar í sundur ásamt gulri papriku í sneiđum.
Međ brauđinu bar hann fram heit Jasmine hrísgrjón og Cantonese sósu frá Uncel Ben.
Međ matnum var drukkiđ heimabruggađ hvítvín, Mjói Munkurinn, sem Angantýr var orđinn nokkur sleipur í ađ gera.
Í desert hafđi Angantýr alltaf rabbarbaragraut međ rjóma.
... einu ljósin sem notuđ voru í húsinu á ţessum kvöldum voru olíulamparnir sem hann átti og hafđi safnađ... lampi í hverju herbergi og nokkrir í eldhúsi og borđstofu.
.
.
Einu sinni ţegar ţau voru sest til borđs var bankađ á útidyrnar. Á tröppunum fyrir utan voru Bjössi brjálađi og Baldur krati, greinilega vel slompađir.
Ég get ekki hleypt ykkur inn núna, hún Munda í Bakkagerđi er hérna, sagđi Angantýr viđ ţá félaga.
Láttu ekki svona sagđi Baldur krati, viđ vorum ađ koma frá Köben og keyptum handa ţér lampa í safniđ.
Bjössi brjálađi rétti honum lampa sem var sá fegursti sem Angantýr hafđi nokkru sinni séđ.
Hann hélt á lampanum og ţađ var glampi í brúnu augunum hans... komiđ ţiđ inn félagar... viđ skulum vona ađ friđurinn haldist...
Ţeir gengu inn í stofu. Hárin á Mundu í Bakkagerđi risu stíf upp í loftiđ ţegar hún sá hverjir voru mćttir á svćđiđ. Hún hentist upp úr stólnum og greip kápuna međ sér... nú er ég farin fyrst ţessir ísbirnir eru komnir... hvćsti hún og strunsađi framhjá ţeim međ bćgslagangi... kápan flaksađi út í loftiđ og lenti á nýja lampanum hans Angantýs... hann flaug upp í loftiđ... Harry heilbrigđi var heilbrigđur í hugsun og snöggur. Hann spýttist eins og gormur upp úr stólnum og sveif á eftir lampanum... hann náđi ađ grípa hann ţar sem hann var ađ lenda á borđinu fyrir framan andlitiđ á Steinhelgu í sjoppunni... eftir lendinguna lá Harry heilbrigđi á matarborđinu međ olíulampan frá Köben í höndunum og horfđi beint í augun á Steinhelgu sem brosti sínu blíđasta og kroppađi sardínur af enni hans...
.
.
Níu mánuđum seinna eignađist Steinhelga í sjoppunni barn... fallegan dreng sem skírđur var Angantýr...
Magnús skósali og Sćmundur bćjarritari sátu brosandi á fremsta bekk í kirkjunni viđ skírnarathöfnina, ađrir sátu aftar...
Athugasemdir
Jahérna hér! Ţetta er nú fariđ ađ nálgast söguţráđ í góđum Dallas ţćtti, nema ţetta er enn betra heldur en Dallas-iđ.
Einar Indriđason, 11.1.2009 kl. 13:01
...hvílíkur gćfugripur ţessi lampi sem ţeir félagar báru frá Köben...
Má eiginlega segja ađ af litlum neista hafi orđiđ mikiđ bál...he he...
En matseđillinn...jakk....
Bergljót Hreinsdóttir, 11.1.2009 kl. 17:57
Ja, nú ţykir mér angantýra...
Gulli litli, 12.1.2009 kl. 15:42
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.