Þegar Skrattinn hitti ömmu sína 2. kapítuli
21.9.2008 | 23:12
... við skildum við Ömmu Skrattans í síðasta kafla þar sem hún stefndi á fimmtíu kílómetra hraða á Vespunni sinni beint á borðið hjá Skrattanum og Helenu fögru...
Sú gamla prjónaði á hjólinu í kringum borðið og öskraði; hvað heldur þú að þú sért að gera skrattakollurinn þinn?
Hún stökk svo af baki, tók í eyrnasnepilinn á Skratta greyinu og dró hann af stólnum... lagði hann síðan yfir hnén á sér, dró niður buxurnar og rassskellti hann... Skrattinn öskraði; amma vitleysingur, slepptu mér, slepptu mér... andskotans vesen á þér, má ég ekki fá mér bjór fyrir þér...
Helena fagra... hélt áfram að sötra bjór og reykja Havanavindil... hún glotti út í bæði...
.
.
Eftir dágóða stund af rassskellingum tókst Skrattanum að snúa á ömmu sína... hann henti sér út af stólnum og lá með buxurnar á hælunum á jörðinni... teygði sig í pilsfald ömmu gömlu og hélt fast... hann náði að standa upp og tók að sveifla kerlingunni í kringum sig þar sem hann hélt í pilsfaldinn..
Nokkur hópur áhorfenda, púkar með hala, hafði drifið að og hvöttu þeir Skrattann til að henda ömmu út í á... Skrattinn lét ekki lengi hvetja sig til illra verka og sleppti pilsinu í einni sveiflunni... amma sveif í fallegum boga og lenti með skvampi í ánni Leðju...
Skrattinn stóð á árbakkanum, ennþá með buxurnar niður um sig, hló rosahlátri og púkarnir allir með...
Helena fagra stóð þá upp, gekk að Skrattanum og ýtti hressilega á bak hans... hann riðaði til falls og hvarf í ána... þegar honum skaut upp náði hann að öskra; ég kann ekki að synda, ég kann ekki að synda...
.
.
Amma gamla sem tróð marvaðann aðeins utar skellti sér á skriðsund og náði að grípa í hornin á barnabarninu sínu... hún hafði eins og margir lært björgunarsund í skólasundinu í gamla daga og nú kom það sér vel...
Skrattinn lá á árbakkanum og var gjörsamlega búinn... hóstaði upp vatni og ranghvolfdi augunum...
Amma tók utan um hann og sagði; Andskotinn minn, ertu ekki að ná þér vinur?
Skrattinn greip Andann á lofti og jafnaði sig með það sama.
.
.
Farðu til Helvítis sagði Skrattinn við Helenu fögru. Já, en við erum þar, svaraði Helena... og vissi ekkert hvern Fjandann Skrattinn var að meina...
Farðu bara eitthvað svaraði Skrattinn... hann var bálvondur út í Helenu...
Heyrðu, sagði amman, viltu ekki elsku Skrattakollurinn minn koma með mér í húsgagnaverslunina Hel að kaupa Olnbogarými? Við skulum fá okkur heitt kakó og pönnsur...
OK amma, svaraði Skrattinn og vippaði sér á bak Vespunni bleiku fyrir aftan gömlu...
Svo brunuðu þau af stað... Skrattinn hélt utan um ömmu sína og hvíslaði í eyra hennar;
Þú ert besta Helvítis amman sem til er...
.
.
Smáa letrið; Þetta var sagan um það þegar Skrattinn hitti ömmu sína.
Athugasemdir
Það vöknuðu nokkrar spurningar við lesturinn!
Er flott að prjóna á Vespu?
Er verzlunin Hel útibú frá IKEA?
Er pláss fyrir tvo á Vespu?
Hreint yndisleg saga af kærleiksfjölskyldunni
Hrönn Sigurðardóttir, 21.9.2008 kl. 23:19
Skrattigóð saga
Svanur Gísli Þorkelsson, 21.9.2008 kl. 23:20
Mér fannst ég kannast við IKEA og þar var ég í dag..... en ekki á bleikri vespu. Annars er sagan skrattigóð, það er rétt.
Marta Gunnarsdóttir, 21.9.2008 kl. 23:27
Bara að láta þig vita af því að það fylgir einhver kökuskratti einhverri myndinni. Spam sem kemur upp um leið og komið er á síðuna þína. Mundi athuga þennan djéskota áður en hann gerir alla vitlausa.
Svanur Gísli Þorkelsson, 21.9.2008 kl. 23:33
Helvíti góð...amma.....og saga.....
Ætli IKEA lumi á svona Olnbogarými????...vantar eitt herbergi sko...væri til í svona flotta...ódýra og asskoti snjalla lausn....
Bergljót Hreinsdóttir, 21.9.2008 kl. 23:57
Næzt, stoppa ég í nezi Borgar & fletti þér upp ...
Steingrímur Helgason, 22.9.2008 kl. 00:26
Góóóður ...
Gísli Hjálmar , 23.9.2008 kl. 20:25
Ég er búinn að senda þér bréf!
Gunnar Helgi Eysteinsson, 24.9.2008 kl. 19:46
Amma kúl..
Gulli litli, 24.9.2008 kl. 22:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.