Haraldur hundur - gáta

... einu sinni var hundur sem hét Haraldur. Honum áskotnaðist beinapoki einn daginn... ef einhver veit ekki hvað beinapoki er, þá er það poki fullur af hundabeinum... ef einhver veit ekki hvað hundabein eru, þá eru það bein af öðrum dýrum en hundum...

... En sem sagt... Haraldur hundur ákvað að grafa beinin í bakgarðinum sínum, eins og hunda er siður... hann flokkaði þau í lala bein, miðlungs bein og góð bein... lala beinin gróf hann dýpst, miðlungsbeinin aðeins ofar og góðu beinin, sem reyndar var bara eitt í pokanum gróf hann efst...

... en af hverju gróf hann góða beinið efst... ???

.

dog_bone

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Indriðason

Hmm... af því að Haraldur hundur er ekki með besta minni í heimi, og með því að láta góða beinið vera efst, og jafnvel standa upp úr jörðinni, þá er hægt að merkja staðinn?  Og eins... þá er hægt að kippa beininu upp einn tveir og þrír?

(Ef Haraldur hundur verður svangur?) 

Einar Indriðason, 5.9.2008 kl. 08:49

2 identicon

hmmmm... útaf því að hann heyrði í lala beinunum... neee þessi er snúin.. ég veit það ekki ..

Stina (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 20:12

3 identicon

Það er eitthvert trikk í þessari hjá þér Brattur. Var hann ekki bara orðinn þreyttur og gat ekki grafið dýpra?

SandhólaPétur (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 21:55

4 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

...hann ætlaði náttla að éta það fyrst....

Bergljót Hreinsdóttir, 6.9.2008 kl. 00:02

5 Smámynd: Brattur

... nú er farið að færast fjör í leikinn gott fólk... en engin er samt heitur ennþá... svarið er orðtak... og blasir alveg við, finnst mér... af því ég veit það...

Brattur, 6.9.2008 kl. 00:11

6 Smámynd: Einar Indriðason

"Þar grefur hundur bein er hann vill ná í"?  Hmm... nei... þetta er ekki orðtak, nema ég hafi bara rétt í þessu verið að búa það til!

Ég veit hins vegar hvaða orðtak þetta er Ekki.  "margur verður af aurunum api."

Einar Indriðason, 6.9.2008 kl. 09:01

7 Smámynd: Brattur

Já, Einar það er sko rétt... með peningana og apana...held jafnvel að aparnir séu betri en þeir sem láta aurana rugla sig og vilja selja allt sem hægt er að selja... dettur bara í hug þessi olíuhreinsistöð sem menn vilja reisa fyrir vestan... þvílíkir apar og apakettir... jæja, nú er ég búinn að taka úr mér mesta morgunhrollinn... og er þá ekki að draga svarið neitt lengra...

Haraldur hundur gróf beinið efst af því að hann vildi að það yrði... trommusláttur...

"Grunnt á því góða"

Brattur, 6.9.2008 kl. 09:41

8 Smámynd: Einar Indriðason

Já, auðvitað!  Ég sé það núna!

Einar Indriðason, 6.9.2008 kl. 12:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband