Köngulær
12.8.2008 | 11:02
... ég var að fúaverja... sullaði aðeins á handlegginn á mér og eiginlega langaði að fúaverja sjálfan mig allan... ansi góður litur... og svo kem ég til með að endast lengur... fúna ekki alveg strax svona hnotubrúnn...
En ég lenti strax í vandræðum með eitt... og það voru köngulær... það voru tveir vefir á pallinum og tvær föngulegar köngulær... einhvern tíman var ég hræddur við köngulær, en ekki lengur, nú voru þær hræddar við mig... og þar sem ég vil nú ekkert kvikt deyða... (nema urriða einstaka sinnum) reyndi eftir bestu getu að losa annan vefinn og færa hann á betri stað... en þar sem ég er nú ekkert rosalega fingrafimur, þá var ég fljótlega flækur í vefnum og hann kominn í loðna klessu...
Hefur ykkur tekist að færa svona köngulóarvef?
Önnur köngulóin var lítli og gulleit... litlar köngulær eru hættulegri en þær stærri, hugsaði ég, svarta ekkjan... hún er pínulítil og hún drepur... þessi litla gula sem ég sá gat heitið... gula morðkvendið... ég varð að fara varlega... ég náði mér í lítinn kassa undan saum... læddist að morðingjanum og færði brún kassans alveg að henni... þá kom kötturinn og át hana...
.
.
... það gekk betur að bjarga þeirri seinni og svo bar ég eina hrossaflugu út af pallinum... settist síðan á stól drakk teið mitt og horfið á veröndina sem beið eftir að ég vökvaði þurra húð hennar....
... kötturinn settist við hliðina á mér... og malaði af ánægju...
Athugasemdir
Góður eins og venjulega.
Edda Agnarsdóttir, 12.8.2008 kl. 13:54
Voru ekki komnir nýjir kóngulóarvefir þegar þú varst búinn með teið þitt?
Hrönn Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 14:00
Aldrei tekizt að flytja k-vef .....
Kisi hefur fengið sushi ... uhmmmm
Guðný Anna Arnþórsdóttir, 12.8.2008 kl. 15:22
Bummer, eftir alla fyrirhöfnina að flytja vefinn, þá komi kisi og *HÁM*-aði litla dýrið í sig.
Einar Indriðason, 12.8.2008 kl. 19:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.