Mér er ekki til setunnar boðið

... var að velta fyrir mér orðatiltækinu "mér er ekki til setunnar boðið"... getur verið að það sé einhver misskilningur í gangi með þetta???

... venjulega er maður að drífa sig þegar maður segir; mér er ekki til setunnar boðið... og svo er maður bara rokinn...

Ég held þetta þýði: Það er enginn sem bíður mér á klósettið hérna, ég verð því að fara eitthvert annað... og þess vegna er maður að flýta sér svona mikið á næsta klósett...

.

4964

.

 

... nei, bara svona að pæla...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Góð pæling

Gunnar Helgi Eysteinsson, 3.2.2008 kl. 18:36

2 Smámynd: Ragnheiður

Næst býð ég þér á klóið

Ragnheiður , 3.2.2008 kl. 19:47

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Getur ekki merkt neitt annað Brattur. Manni er bókstaflega bannað að fara á klósettið og þá er ekkert annað en að "pressa" og reyna að finna annað.

Halldór Egill Guðnason, 3.2.2008 kl. 21:48

4 Smámynd: kloi

Góður Brattur.......Ég á svaka fínan klósettkassa en nota hann aldrei . Miklu betra að nota garðinn hjá nágrannanum......   .....Klói þó ...... 

kloi, 3.2.2008 kl. 22:29

5 Smámynd: Hugarfluga

Nei, þú misskilur þetta svaðalega.

Hið rétta er: "Manni er ekki til Zetunnar boðið", sem þýðir að það er ekki í boði að þykjast vera fínn maður með því að skrifa "Við höfðum hizt áður" eða "Bezta vinkona mín ...."

Það er sumsé ekki í boði að þykjast vera Verzlunarskólagenginn og vera svo bara ruzlakall.

Hugarfluga, 3.2.2008 kl. 22:57

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Annars hefur mér ávalt fundist orðatiltækið "Að ganga í hægðum sínum" vera frekar svona eitthvað sem vert væri að fá botninn í.

Halldór Egill Guðnason, 3.2.2008 kl. 23:40

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hvað finnst þér þá um orðið  "hægðarleikur" Halldór ? 

Anna Einarsdóttir, 3.2.2008 kl. 23:46

8 Smámynd: Brattur

nei, nei... Halldór og Anna... hægið nú aðeins á ykkur...

Brattur, 3.2.2008 kl. 23:48

9 Smámynd: Ragnheiður

Oj hehehehe nú versnaði í því

Ragnheiður , 4.2.2008 kl. 00:18

10 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Alveg sjálfsagt Brattur, en hvar? Svar óskast súner ðen seinna. "Pressure is rising"

Halldór Egill Guðnason, 4.2.2008 kl. 08:28

11 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Hef einmitt skilið þetta svona og er illa við að ganga í hægðum mínum til næsta bæjar, man enn eftir mosaskeiningum úr æsku.

Skelfileg lífsreynsla að skeina sig með mosa og þurfa svo að ríða á klárnum heim, ráðlegg engum það.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 4.2.2008 kl. 13:52

12 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ég man eftir manni sem átti það til að gera númer 2 á hestbaki. Honum fannst það bara allt í lagi og tuldraði ávallt fyrir munni sér "þetta jafnar sig, þetta jafnar sig..." Nei nú er mál að linni. Búið að eyðileggja færsluna hjá Bratti með skítlegum athugasemdum. Hættur þessu bulli. Fyrirgefðu Brattur minn.

Halldór Egill Guðnason, 4.2.2008 kl. 18:08

13 Smámynd: Brattur

... allt í lagi kæri Halldór... nú fer ég og skrifa nýja fallega færslu...

Brattur, 4.2.2008 kl. 19:26

14 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Einhver á að hafa sagt: Betra er að hafa góðar hægðir en góðar gáfur. Kannski eitthvað til í því, en best er að hafa hvorutveggja. En ef farið er að velta fyrir sér orðatiltækjum, þá er það hálf undarlegt að hægt sé að ganga í hægðum sínum og stíga í vitið og einnig að stíga á hægðir sínar og ganga á vitið. Einnig hægt að ganga á vit einhverra eða einhvers.

Brattur, ´þú auðgar huga minn, takk fyrir það

Hippie

Ingibjörg Friðriksdóttir, 4.2.2008 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband