Klemmukarlinn
3.2.2008 | 12:37
Vignir Sigurpáll vinnur hjá Skattinum... í alla tíð hefur alltaf unnið maður hjá Skattinum sem heitir Vignir, hafið þið ekki tekið eftir þessu?
Vignir Sigurpáll, eða Viggi Palli eins og vinir hans kalla hann... er ofboðslega sérstakur náungi. Ég hef þó alltaf kunnað vel við hann og spjallað við hann þegar ég á erindi á Skattstofuna, eða þá að ég rekst á hann í heita pottinum.
En af hverju er ég að tala um Vigni Sigurpál, jú vinur okkar er sjúkur í klemmur... ég veit ekki um nokkra aðra manneskju sem elskar klemmur eins og Viggi Palli gerir.
.
.
Hann á mörg þúsund klemmur af öllum gerðum; venjulegar tréklemmur, plastklemmur í öllum regnbogans litum og frá flestum heimsálfum. Vinir hans sem eru á ferðalögum kaupa oft handa honum poka af klemmum til að færa honum, því fátt gleður hann meira.
Vignir Sigurpáll þolir ekki þurrkara, þeir fara illa með þvottinn og eyðileggja þann möguleika að hengja þvottinn upp með klemmum. Þegar Viggi Palli þvær þvott... þá hengir hann hverja einustu flík upp með klemmum.
Hann notar gular klemmur á alla sokka, rauðar á skyrtur, svartar á buxur og bláar á naríurnar.
Handklæðin eru eingöngu hengd upp með tréklemmum.
Þegar hann hengir upp gardínurnar sínar, þá eru það silfraðar klemmur frá Puerto Rico sem eru notaðar.
Hann er með verkfærakassa í stöflum í þvottahúsinu þar sem hver tegund og litur er geymd í. Framan á verkfærakössunum er síðan mynd af tegundinni sem er í kassanum.
.
.
Viggi Palli á líka jólaklemmur. Hann hefur málað margar tréklemmur í rauðu og grænu, skreytt með glimmer og notar þær til að hengja upp jólakúlurnar.
Vignir Sigurpáll, hefur kynnt sér sögu klemmunnar og veit að það var Franz Von Klemmenbart sem bjó til fyrstu klemmuna...
Það er stór mynd af Franz Von Klemmenbart í þvottahúsinu hjá Vigni Sigurpáli.
.
.
Athugasemdir
Heheheheheheh fyndið var að kaupa sex klemmur í gær hjá Sostrene Grenes Handelskompagnie, allar úr tréi, tvær eru hvítar, tvær nærbuksnableikar, ein silfruð og ein rósbleik.
Edda Agnarsdóttir, 3.2.2008 kl. 12:47
... já, Edda, klemmur eru sko nauðsynlegar og eins gott að hafa þær flottar... heildarmyndin í þvottahúsinu grundvallast á fögrum klemmum....
Brattur, 3.2.2008 kl. 12:57
Heitir þessi sjúkdómur ekki eitthvað?
Júdas, 3.2.2008 kl. 14:01
jújú...hann heitir klemmu þráhyggja...hehe
Agnes Ólöf Thorarensen, 3.2.2008 kl. 15:08
Takk fyrir þetta...
Gunnar Helgi Eysteinsson, 3.2.2008 kl. 15:22
... veit ekki alveg hvað þessi sjúkdómur heitir, en ef fólk er gjarnt á að týna klemmum, þá heitir það "klementínusótt"...
Brattur, 3.2.2008 kl. 15:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.