Allt að verða vitlaust

Þið eruð náttúrulega æði... kæru bloggvinir... nú þarf ég að fara að lesa fagurbókmenntirnar ykkar... ég ætla að gera það hægt og rólega... og velja bestu ljóðin og veita verðlaun...

Ég er búinn að renna augunum mínu brúnu létt yfir skrif ykkar og sé að margt kemur beint frá hjartanu... og snertir hjarta mitt, sem yfirleitt slær sín 60 slög á mínútu þannig hraðinn eykst og slær upp í þriggja stafa tölu...

Anna fær strax aukaverðlaun fyrir dugnað... og að hægt er að syngja flest það sem hún skrifar við alkunn alþýðulög... held hún hafi verið skáti, stelpan eða í flugbjörgunarsveit... en nú er best að vinda sér í lesturinn... ná sér í handklæði þegar tárin byrja að streyma... eða að klæða sig í svartan ruslapoka...

Ykkar,


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Vó !!    Hvað er í verðlaun ?

Ég var aldrei skáti !  Hvernig dettur þér líka í hug að klína mér í flugbjörgunarsveit, lofthræddri stelpunni ?  Líklega meintir þú flugubjörgunarsveit. 

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 20:31

2 Smámynd: Brattur

jahá... ég er ekki alveg búinn að finna út úr því, en það gæti t.d. orðið helgarnámskeið, sem heitir "Skák fyrir byrjendur" og/eða "Hvernig á að synda meðan sungið er"... hvort finnst þér meira spennandi?

Ég var að koma úr vinnuferð frá Þórshöfn (á Langanesi) keyrði yfir Öxafjarðarheiðina, gengum Húsavík og varð rétt að "lenda" á Akureyri... ég var sko engin fluguvinur á leiðinni... húddið var svart af litlu vinunum okkar, flugunum...

Brattur, 17.7.2007 kl. 20:43

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Skák fyrir byrjendur ?    Hvernig á að synda meðan sungið er ?

Vel sundnámskeiðið.  Held þó að það muni ekki vekja mikla lukku meðal hinna sundlaugargestanna.  Söngurinn sko.

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 20:56

4 Smámynd: Lára Stefánsdóttir

Mér finnst lágmark Brattur að þú sendir Önnu eins og eina ljóðabók eftir þig fyrir allan kveðskapinn. Ódauðleg snilld.

Annars frétti ég að í fyrsta skipti í langan tíma hefði Brattur litli sofnað uppúr átta  og ekki rankað við sér fyrr en morguninn eftir. Svo hann ætti að vera ferskur í þakkarljóðin;-)

Lára Stefánsdóttir, 17.7.2007 kl. 20:59

5 Smámynd: Brattur

Nú er ég að velja topp 10 ljóðin, þ.e. þau sem komast í lokakeppnina... og verða þau tilkynnt núna á eftir...

Anna : Það er allt í lagi að syngja í kafi... heyrist ekkert nema í innan í hausnum á mér... ég geri þetta oft...

Ægir : Alltaf þegar maður veðjar ölkassa og tapar... þá drekkur maður a.m.k. helminginn af kassanum með sigurvegaranum...

Lára : Það er gott að fara snemma að sofa á Langanesinu... vakna svo um miðnættið og horfa á sólina hníga í hafið... yrkja ljóð, halda að það sé flott, svona aftur og koma heim á bloggið og sjá, að ljóðið var ekki svo gott...

Brattur, 17.7.2007 kl. 21:09

6 Smámynd: Brattur

svona = sofna

Brattur, 17.7.2007 kl. 21:09

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Takk fyrir afar fallegt hrós Lára.

Ohhh.... þetta er svo spennandi.    (svo fyndið hvað Ægir er sigurviss)

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 21:16

8 Smámynd: Lára Stefánsdóttir

Hvernig var ljóðið?

Lára Stefánsdóttir, 17.7.2007 kl. 21:27

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

labbilabbi labb um gólf.

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 21:38

10 Smámynd: Brattur

... ég sé að dómnefndin með Bratt yfirdómarar er að klára... nei, en hvur ands... mér sýnist Brattur ætli að fá sér te áður en hann tilkynnir úrslitin...

Brattur, 17.7.2007 kl. 21:41

11 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ef ég vinn, ætla ég að drekka hann allan ALEIN.

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 21:45

12 Smámynd: Brattur

Anna, Anna.... ok... á ég ekki samt að sita við hliðina á þér og opna flöskurnar? (ekki drekkum við dósabjór, er það?)

Ægir : Þú er fæddur höfðingi...

Brattur, 17.7.2007 kl. 21:53

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Við drekkum sko bjór úr dós minn kæri.    Nei !  Núna varstu næstum búinn að plata mig.  Ég drekk sko bjór úr dós.  Hann verður samt að vera "konubjór".  Hann má gjarnan heita Heiniken eða San Miguel eða Tuborg, ha. 

En ef Halldór eða Kristjana vinna, þá skiptum við honum á milli okkar.

Ægir tapar.

Anna Einarsdóttir, 17.7.2007 kl. 22:12

14 Smámynd: Brattur

... svo þar dómarinn að taka út sín laun....

Brattur, 17.7.2007 kl. 22:17

15 Smámynd: Brattur

Ægir, það hafa nú margir gíslarnir verið teknir... en sumir sleppa alltaf... órtúlega vel... enda í dulargerfi alla daga...

Brattur, 17.7.2007 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband