Ánamađkaheimspeki

Jćja, ţá er mađur vaknađur einu sinni enn eins og stendur í blúskvćđinu.

Ég vaknađi í morgun eins og ég vaknađi í gćr og ef ég vakna aftur á morgun ţá hef ég vaknađ ţrjá daga í röđ.

Mađur er stundum svo ferskur á morgnana í hausnum en núna er ég bara međ hausverk... ekki ţađ ađ ég hafi veriđ á fylliríi í gćr, nei ţetta er bara svona óţarfa hausverkur... ţrátt fyrir hann hef ég veriđ ađ hugsa ýmislegt eins og t.d. hvernig skyldu ánamađkarnir hafa ţađ... hvernig ćtli ţađ sé ađ vera ánamađkur og vera alltaf á kafi í mold og drullu... ţeir vita ekki einu sinni ađ ţađ eru ađ koma Páskar... svo eftir langan vetur ţegar greyin langar ađ koma upp á yfirborđiđ og kanna ástandiđ ţá eru ţeir étnir af hettumávum... hvers konar líf er ţetta eiginlega... svo erum viđ mannfólkiđ ađ kvarta undan ţví hvađ viđ erum blönk.

Já, svona var ég ađ hugsa í morgun. En núna finn ég ađ ég er ađ verđa svangur og langar í te og ristađ brauđ međ sveitaosti og ef ég vćri ekki í ađhaldi ţá fengi ég mér blandađa berjasultu ofan á.

Svo hugsađi ég ađeins um Guđ í morgun líka... ég var ađ spá í af hverju enginn annar en hann heitir Guđ... ćtli mannanafnanefnd banni ţađ ? En samt má heita Guđfinna og Guđgeir og Guđsteinn og Guđríđur og Guđmundur, ţađ verđur bara alltaf ađ vera eitthvađ fyrir aftan Guđ.

Ađ lokum vona ég ađ dagurinn ykkar allra verđi góđur og ef ađ eitthvađ bjátar á hugsiđ bara um ánamađkana.
.

Tevez

.

Betra er ađ vera blankur en ánamađkur.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guđjónsson

nafn guđs endar á 'đ' og ţví hlýtur guđ ađ vera hvorugkyns. ţađ guđ, en ekki hann Guđ. ţess vegna hefur mannanafnanefnd ekki lögsögu í málinu, ţví menn eru einungis karl- eđa kvenkyns. aldrei hvorugkyns.

guđ er suđ.

en hvađ varđar ánamađkana ţá höfum viđ marga frćndur ţeirra mitt á međal vor, í líki mannfólks. ţeir kallast bjánamađkar (áđur útrásarvíkingar)

Brjánn Guđjónsson, 13.3.2010 kl. 13:09

2 Smámynd: Halldór Egill Guđnason

Mér sýnist nú best ad vera kisa, í Borgarnesi. Já blessadur madkurinn. Ef fuglinn ekki étur hann, er hann tekinn og thraeddur upp á krók sem agn. Engist thar um á sitt hvorn enda, thvi ekki getur engst um á hael og hnakka. Já....thetta er alveg hárrétt hjá thér Brattur. Thad er betra ad vera blankur. Eigdu gódan dag í dag sem adra daga og megirdu vakna sem oftast karlinn minn. Hvar er annars best ad fara i veidi seinni partinn i maí?

Halldór Egill Guđnason, 14.3.2010 kl. 15:27

3 Smámynd: Brattur

Seinnipartinn í maí... hmm... ţađ er full snemmt í bleikju eđa lax... hinsvegar má alltaf finna stađi fyrir urriđa eđa sjóbirting á ţessum tíma... eigum viđ ađ skella okkur saman félagi ???

Brattur, 14.3.2010 kl. 16:05

4 Smámynd: Halldór Egill Guđnason

Thad er hér med faert til dagbókar, ad fyrirhugud sé veidiferd seinni hluta maímánadar 2010. Veidifélagi, Brattur. Líst vel á thad. Kannski sjáum vid koflóttan hest eda getum skotid lóu í leidinni? Ég sé um raudvínid! Thú sérd um madkinn....Thetta gaeti ordid spennandi. Tveir blankir og madkur.  

Halldór Egill Guđnason, 14.3.2010 kl. 16:21

5 Smámynd: Brattur

Glćsilegt !!! Nú ţarf bara ađ finna réttu ánna... ég hef nú leitina og lćt ţig fylgjast međ...

Brattur, 14.3.2010 kl. 20:12

6 Smámynd: Halldór Egill Guđnason

Thetta verdur bara gaman. Reyndu annars ad finna tha einhverja á sem er eiginlega algerlega pottthétt ad fá fisk í ;-)

Halldór Egill Guđnason, 14.3.2010 kl. 22:55

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband