Jesús hló að öllu saman
28.3.2009 | 23:47
Ég tala stundum við Jesú. Ég spurði hann í kvöld hvað honum þótti um landsfund Sjálfstæðismanna í dag... ræðuna hans Davíðs... Skattmann brandarann hennar Þorgerðar Katrínar... Hannes Hólmstein og Vilhjálm Egilsson í fýlu.
Jesús svaraði... var þetta landsfundur Sjálfstæðismanna???
Ég hélt ég hefði verið á landsfundi hjá Lionsklúbbnum Fálkarnir... , hver var þetta sem var að herma eftir mér? ... sá þarf að æfa sig betur... og svo hló Jesús hátt...
.
.
![]() |
Víkingar með Samfylkingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Brattur er gvÖÖÖÐ
28.3.2009 | 13:47
Landsfundur Ö listans var haldinn í morgun í þvottahúsinu.
Undirritaður var kosinn formaður, varaformaður og ritari með nettu lófataki og einu litlu lóukvaki sem barst inn um gluggann úr skítakuldanum.
Þá mun undirritaður vera í 1. sæti á lista flokksins í öllum kjördæmum. Er það í fyrsta skiptið sem slíkt er gert. Ö flokkurinn ríður því á vaðið og verður fyrsti flokkurinn í sögu Íslands (Guð blessi Ísland) til að taka upp einmenningskjördæmi.
Ö flokkurinn er rosalega OPINN flokkur þar sem allar skoðanir rúmast innan dyra. Á leiðinlegar skoðanir verður hlustað en ekkert gert með þær.
Ö flokkurinn hefur fÖÖÖgur fyrirheit og berst lÖÖÖðursveittur alla daga fyrir að koma manni (ákveðnum manni) á þing.
Eitt af helstu umræðuefnunum á landsfundinum var kosningavakan og veitingar sem þar verða í boði. Ritarinn stakk upp á því að hafa kalt ÖÖÖÖÖÖÖÖl og mikið af því. Var þeirri uppástungu ákaft fagnað og má ennþá heyra húrrahrópin berast úr þvottahúsinu. Gríðarleg stemming er á landsfundinum.
En eins og landsmenn vita þá hefur Ö flokkurinn bara eitt stefnumál og má lesa um það HÉR.
.
.
Brattur er gvÖÖÖð, mÖÖÖÖrgæsir á Vatnajökul, ÖÖÖReigar allra landa sameinist!!!!
Kjósum ÖÖÖÖ listann i vor.
![]() |
Þurfum að opna flokkinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)