Iđar
12.12.2009 | 11:12
Einu sinni var mađur sem hét Iđar.
Hann var afdalabóndi og bjó í Skinni í Litlahreppi.
Ţegar hann kom í bćinn í verslunartúr tóku allir eftir honum. Hann var mjög hávaxinn og einnig mjög hárvaxinn. Rautt sítt hár og skeggiđ svo mikiđ ađ ekkert sást í andlitiđ nema dökkblá augun.
Ţegar hann talađi ţá opnađist rifa í miđju skegginu og munnurinn kom í ljós. Röddin var djúp og mikil, rám og minnti helst á hrút međ hálsbólgu.
Fólkiđ hvíslađi sín á milli; hver er ţetta eiginlega ?
Jú, ţetta er hann Iđar í Skinninu var svariđ.
.
.
Iđar tók einu sinni upp á ţví ađ fara ađ stunda messur í bćnum. Hann hafđi unun af ţví ađ hlust á sálmana sem kirkjukórinn söng. Iđar lćrđi smám saman textana og söng međ í huganum. En svo ţegar tíminn leiđ ţá fór hann ađ syngja upphátt. Fyrst var ţetta bara svona raul en fljótlega var hann farinn ađ syngja af fullum krafti.
Iđar söng hátt og snjallt. Ţađ var eins og hundrađ hrútar vćru saman komnir. Og ţiđ getiđ rétt ímyndađ ykkur hvernig "Bjargiđ aldan borgin mín" hljómar úr munni hundrađ hrúta.
Ţessi söngáhugi Iđars varđ brátt vandamál. Kirkjugestir voru hćttir ađ heyra í kirkjukórnum og kvörtuđu viđ prest og kórstjóra undan honum.
Iđar var kallađur á fund. Iđar minn, sagđi séra Gaukur varfćrnislega. Er nokkur möguleiki á ţví ađ ţú gćtir ađeins lćkkađ róminn ţegar ţú syngur ? Kirkjukórinn á í mestu erfiđleikum međ ađ yfirgnćfa ţig. Já, já svarađi Iđar, ef ég má vera međhjálpari ţá skal ég alveg hćtta ađ syngja.
Eftir töluvert japl, jamm, fuđur og baktjaldamakk var Iđar bođiđ ađ vera međhjálpari einu sinni í viku en ţó međ einu skilyrđi. Hann yrđi ađ raka af sér skeggiđ og snyrta hár sitt.
Ţađ var fjallmyndarlegur mađur sem kom í ljós ţegar allt háriđ hafđi veriđ fjarlćgt af Iđar. Ţađ leiđ ekki á löngu ţar til hann giftist henni Valdínu í kirkjukórnum.
Eignuđust ţau dreng sem skírđur var Yđar.
Líkur nú sögunni af Iđar í Skinninu.
.
.
Athugasemdir
Náđirđu í lyfjaboxiđ mitt?
Eygló, 12.12.2009 kl. 17:26
Hahaha stórskemmtileg lesning! Takk fyrir mig.
Rannveig Guđmundsdóttir, 13.12.2009 kl. 14:14
Flottur núna, enda ekkert ađ mala um fódbolta....
Steingrímur Helgason, 13.12.2009 kl. 23:01
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.