Þarf að kaupa ýmislegt í dag
17.1.2009 | 13:30
... ég er á leið í Húsasmiðjuna... er með minnislista...
1 stk. Látúnshálsgjörð - Hef alltaf langað að eiga slíka eins og Snati
1 stk. Húfur - Gott að hafa mikið í húfi
3 stk. Hófar - Geyma þá á besta stað svo ekki þurfi að leita hófanna
1 stk. Afslapp - Gott að smeygja sér í mjúkt afslapp að loknum erfiðum vinnudegi
10 Metra haldreipi - Fyrir öryggistilfinninguna
1 stk. Langatöng - Til að klippa í sundur víra sem eru langt frá manni
1 stk. Ruggustólpípu - Æfa sig í ruggustólnum að verða gamall með góða pípu
1 stk. Létt-Þungavigt - Kemur manni í gott skap þegar maður stígur á hana, því hún segir ósatt
1 stk. Sólaruppkoma - Hengja fyrir utan svefnherbergisgluggan og láta hana vingsast þar alla morgna
1 stk. Kát dýna - Dýna sem kitlar mann og lætur mann hlægja endalaust, líka að fréttunum
2 kg. Skammdeig - Æðislegt brauð í skammdeginu... gott með smjöri og súrkáli
1 stk. Greiðsludreifingu - Hárið hættir að standa svona mikið út í loftið á morgnana með Remington greiðsludreifingu.
1 stk. Afsláttur - Góður í bílinn til að slá af hraðanum ef maður stígur of fast á bensíngjöfina
1 stk. Smuga - Veit ekki hvað ég ætla að gera með hana
1 litla byltingu - Bara ef til kastanna kemur
.
.
Athugasemdir
Þú lætur kannski þjóðina vita, ef þú rekst á x-stk. væntumþykjudreifara...
Ásgeir Kristinn Lárusson, 17.1.2009 kl. 13:45
Já, Ásgeir það skal ég sannarlega gera og gef CD diskinn Faðmlögin með hverjum dreifara...
Brattur, 17.1.2009 kl. 14:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.