Paur
17.4.2008 | 19:43
... undanfari hatta var mjög skemmtilegur hlutur... kallaður paur... af því að hattar höfðu ekki verið fundnir upp þá vissu menn náttúrulega ekki hvernig hattur ætti að líta út... þess vegna var fyrsti hatturinn sem framleiddur var, ekki hattur, heldur paur - og ekki vissu menn heldur að þessi hlutur ætti eftir að heita hattur... hvernig í ósköpunum gátu menn vitað það?... hvað eigðum við að láta þetta heita, sögðu Zwúpímenn..., (því auðvitað var fyrsti paurinn gerður í Zwúpílandi)... er ekki paur ónotað orð hjá okkur?
jú, enginn kannaðist við að það væri í notkun... svo það var bara ákveðið á stundinni...
Hér er svo mynd af paur... sem sumir kalla reyndar höfuðpaur...
Ef þið, kæru hlustendur, hafið einhverjar spurningar um Zwúpímenn og siði þeirra... þá endilega sendið mér línu...
.
.
Athugasemdir
Voru Zwúpímenn eitthvað skyldir kanínum ?
Anna Einarsdóttir, 17.4.2008 kl. 22:09
Næsti ættliður Anna, næsti ættliður. Næsti ættliður á eftir er Bush.
Ragnheiður , 17.4.2008 kl. 22:13
... nei, nei... Anna... en þú er nálægt... þeir voru skyldir Kamínum...
Brattur, 17.4.2008 kl. 22:15
Mér fannst ég eitthvað kannast við svipinn. Bush.
Anna Einarsdóttir, 17.4.2008 kl. 22:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.