Melrakkinn
25.10.2007 | 23:56
... ég var eiginlega ađ uppgötva ţađ í kvöld ađ ég er ekki týpískur karlmađur... held ég, hef svosum ekki gert neinar rannsóknir á ţví... ég t.d. hef aldrei haft áhuga á bílum, eins og langflestir karla hafa... bílar hjá mér heita ekki nöfnum eins og Subaru... Toyota eđa eitthvađ slíkt... ég hef ekki hugmynd um hvernig svoleiđis bílar líta út... ég ţekki bíla af ţví ađ ţeir eru rauđir eđa bláir eđa hvítir... ég er t.d. spurđur; hvernig bíl átt ţú... og ţá segi ég auđvitađ; ég á hvítan bíl... svo er kannski spurt um hestöfl... eru kannski ekki hestöfl í bílum í dag? ég hef náttúrulega ekki hugmynd um ţađ...
...ég hef hinsvegar átt góđa spretti í bílaumrćđunni... fór einu sinni međ bilađan bíl á verkstćđi... hafi heyrt eitthvađ hljóđ í nokkra mánuđi ţarna fram í ţar sem vélin er, held ég... karlinn í bláa samfestingnum á verkstćđinu spurđi bísperrtur ; hvađ er svo ađ góurinn... ţá mundi ég ćđislega flott orđ; altanitor... hafđi heyrt á tal manna um bíla og ţeir töluđu um altanitor... reyndar hljómar ţetta eins og söngvari; tenór og alt... "Ég held ţađ sé helv... altanítórinn sagđi ég kokhraustur og rétti honum lyklana...
... sá í bláa samfestingnum tók mig á orđinu... ţegar ég náđi í bílinn aftur... ţá var rukkađ fyrir nýjum altanitor... en hljóđiđ ţarna fram í ţar sem vélin er... ţađ var ekki horfiđ...
... ég hef heldur ekkert gaman ađ ţví ađ smíđa, eđa mála, eđa nota skrúfjárn og rörtangir... rörtangir, t.d. ná alltaf ađ klípa mig ţegar ég held á ţeim... eftir ađ hafa notađ hamar, ţá er ég oftar en ekki međ bláar neglur... not my cup of tea...
Melrakkinn.
Ég er ekki góđur smiđur
Ég kann ekki ađ bora í vegg
Ég er eins og mjúkur viđur
Oft međ ţriggja daga skegg
Ég er alltaf á miklu flakki
Ég er sléttunnar Melrakki
Ég er oft í hvítum sokkum
Og svörtum buxum eins og kol
Ég skarta ekki ljósum lokkum
Mér finnst ég flottur í rauđum bol
Ég er alltaf á miklu flakki
Ég er sléttunnar Melrakki
Ég ţarf mörgu og miklu ađ sinna
Og dunda mér viđ flest
Reyni úr ullinni ađ spinna
Allt sem fínast er og best
Ég er alltaf á miklu flakki
Ég er sléttunnar Melrakki
Athugasemdir
Var ţá myndin af manninum međ járnkarlinn bara svona einskiptis ćvintýri?
Reyndar hljómar bílatal í mínum eyrum mjög svipađ ţví sem ţú lýsir hérna.
Melrakkinn - er frábćr
Marta B Helgadóttir, 26.10.2007 kl. 00:42
Marta.: Renault til sölu. 120 hestöfl, tveggja dyra. Franskur. Heldur ađ hann sé jeppi. Algert tryllitćki, međ beina innspýtingu. "Reyndar hljómar bílatal í mínum eyrum mjög svipađ ţví sem ţú lýsir hérna."
Halldór Egill Guđnason, 26.10.2007 kl. 00:51
Velkomin af sléttunni....flott fćrsla og sjáumst hress...
Vilborg Traustadóttir, 26.10.2007 kl. 01:22
Halldór... já, já komiđ lag mađur... á bara eftir ađ syngja inn ţegar ég verđ kominn endanlega til byggđa... ţá verđur heldur ekki svona langt á milli fćrslna hjá mér... loforđ...
Marta... ég er samt nokkuđ góđur međ járnkarlinn... uppáhalds verkfćriđ mitt...
Vilborg... ég kem aftur... ég kem alltaf aftur...
Brattur, 26.10.2007 kl. 11:42
Melrakkinn góđur,er ekki viss um ađ allir sem eru ađ tjá sig digurbarkalega um bíla hafi verulegt vit á ţeim ţegar til kastanna kemur
Ari Guđmar Hallgrímsson, 26.10.2007 kl. 11:48
Ekki gaman af bílum, ekki gaman ađ smíđa, mála, nota rörtangir og skúfjárn ?
Brattur.....
...... kanntu ađ sauma og prjóna ?
Anna Einarsdóttir, 26.10.2007 kl. 16:07
Anna... nei, ekki kann ég ađ sauma né prjóna, ég svitna bara viđ tilhugsunina...
ég eiginlega kann ekki neitt... ţegar vel er ađ gáđ....
Brattur, 26.10.2007 kl. 17:01
Brattur, ţú segist ekki kunna neitt ef vel er ađ gáđ! Ţá ertu í góđum selskap:
Ađ viskan sé vćnleg og ţráđ
og vísindi efli alla dáđ.
Er vandlega ritađ
ţó ekkert sé vitađ
međ vissu,
ef vel er ađ gáđ!
Ásgeir Rúnar Helgason, 26.10.2007 kl. 18:13
... ég er nćstum ţví örugglega sjúr á ţví, Kristjana ađ ţú ert ekki karlmađur...
Brattur, 26.10.2007 kl. 19:58
... Ásgeir... góđ vísa...ef vel er ađ gáđ...
Brattur, 26.10.2007 kl. 20:00
Eftir ađ hafa starfađ á smáauglýsingadeild DV ţegar hún var upp á sitt allra allra besta ţekki ég flest bílanöfn. Get slegiđ um mig međ flottum nöfnum. Ég verđ líka ađ viđurkenna ađ margar bílategundir ţekki ég ţegar ég sé ţćr og sérstaklega ef ég er komin nógu nálćgt til ađ sjá lógóiđ
.
Önnur ţekking situr eftir frá DV árunum mínum en ţađ er hvađa póstnúmer er á hvađa stađ á landinu. Frekar useless í ljósi ţess ađ mađur sleikir sjaldan frímerki lengur.
Jóna Á. Gísladóttir, 26.10.2007 kl. 20:23
Jóna... hvađa stafur var á bílum frá Siglufirđi?
Brattur, 26.10.2007 kl. 21:18
Nákvćmlega, ég hef sagt svona vođalega sposk á bílaverkstćđi: ".. mér svona sýnist og hm... heyrist, ađ ţetta gćti veriđ spindilboltarnir...." - og ţađ var rétt. (Ég hef ekki hugmynd um bíla nema ađ ég vil ađ ţeir hafi fjögur hjól og hafi ekki svo hátt, ađ ég geti heyrt í útvarpinu. Eđa geislaspilaranum - međ kexmylsnuljóđinu, t.d. ) Ţađ er eitthvađ sjarmerandi viđ karlmenn sem eru ljóđrćnir og pćlandi, en kunna ekki á bíla og bora. Don´t ask me why.
Guđný Anna Arnţórsdóttir, 26.10.2007 kl. 23:21
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.