Við Ryan
15.4.2009 | 21:32
Var mjög sáttur við leikinn í kvöld... sýnist United vera á leið upp úr litla öldudalnum sem þeir hafa verið í að undanförnu...
Ryan Giggs var besti maður vallarins í kvöld... gaman að sjá léttleika hans og leikni... (minnir mig stundum á mig ) í þeim pilti slær hið sanna United hjarta... (eins og mér
)... var að átta mig á því í kvöld hvað við Ryan erum líkir...
Markið hans Ronaldo var í heimsklassa, enda drengurinn í liði heimsmeistaranna.
Ég geri mér hinsvegar grein fyrir því að það er nánast útilokað að landa þeim þrem titlum sem enn er möguleiki að ná... tveir eru þegar komnir í höfn... af þeim þremur sem enn er hægt að ná þætti mér best að landa Englandsmeistaratitlinum...
Vek athygli á því að mörg önnur lið eru nánast komin í sumarfrí... sum þeirra eru í borg ekki allfjarri Manchester...
.
.
Brattur, slæmur í hnjánum en léttur í lund.
![]() |
Ferguson: Vörnin gerði útslagið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |