Mundi á Önnunni
4.10.2008 | 15:36
... Mundi átti þrjátíu tonna bát sem hét Anna... eins og konan hans... hann var því aldrei kallaður annað en Mundi á Önnunni...
Svo kom að því að Mundi fékk sér nýjan bát, nýja Önnu. Nýja Annan var með alls konar nýtískuleg tæki og fullt af tökkum í stýrishúsinu... Mundi sýndi öllum bæjarbúum nýju Önnuna með stolti og sagði; þessi takki er til að gera þetta og þessi er til að gera hitt o.s.frv.
Þá spurði einn gestanna; en þessi takki, til hvers er hann? Og benti á takka sem Mundi hafði ekki sagt neitt um.
Þessi, sagði Mundi, ég veit það ekki, það er bara gott að hafa hann.
.
.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Ragnar Reykás
4.10.2008 | 11:05
... Guðmundur Marteinsson hvetur fólk til að kaupa íslenskt! Ja, hérna Ragnar Reykás mættur á svæðið.
Ég veit ekki betur en að þeir Bónus menn hafi rekið mestan áróður í gegnum tíðina fyrir því að leggja íslenskan landbúnað niður... en þeir eins og venjulega haga seglum eftir vindi og þegar þeim hentar þá segja þeir bara eitthvað allt annað.
Þeirra mottó hefur alltaf verið; ef á þig er ráðist, þá skaltu svara fyrir þig með tvöfalt meira afli.
Dæmi; Þegar þeir hafa komið illa út í verðkönnunum, þá koma þeir í fjölmiðlana (sérstaklega sína eigin) og rakka verðkönnunarfólkið niður og segja það ekki kunna til verka og öll verðkönnunin sé ómark.
Eða þá að þeir banna verðkannanir í búðunum sínum, sbr. þegar þeir bönnuðu ASÍ að koma og gera verðkannanir í búðunum hjá sér. Þeir vilja sem sagt stjórna því hvernig verðkannanir eru gerðar og hvenær, þannig að þeir séu með allt sitt á tæru þegar verðkönnun er gerð alveg eins og í gamla daga þegar sagt var að DV sem gerði verðkannanir, hringdi í þá og lét vita áður en komið var í búðirnar. Þá gátu þeir lækkað öll verð hjá sér og komið vel út í könnunum.
.
.
En ég gat ekki annað en brosað þegar Guðmundur Marteinsson; lestist Ragnar Reykás, skorar á fólk að velja íslenskt.
Bónus menn hafa alltaf verið snillingar í blekkingum og áróðri... og þar kemst engin með tærnar þar sem þeir hafa hælana.
Smáa letrið; þetta var morguntuð Bratts, a la Halldór í suðurhöfum (Tuðarinn). Lofa að tuða ekki meira á næstunni
![]() |
Ótti gripur um sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)